Fréttir

Hagnađur og arđur vátryggingafélaga 2006-2008

20.7.2009

Vegna fréttaflutnings í fjölmiđlum síđastliđna helgi um arđgreiđslur vátryggingafélaga og hlutfall ţeirra af hagnađi, telur Fjármálaeftirlitiđ rétt ađ birta upplýsingar um hagnađ og arđgreiđslur ţriggja stćrstu vátryggingafélaganna vegna áranna 2006-2008. Ţegar arđgreiđslur eru bornar saman viđ hagnađ er rétt ađ hafa í huga ađ ákvörđun um arđgreiđslur er tekin á ađalfundum vátryggingafélaga og er ţá miđađ viđ afkomu ársins á undan. Ţannig voru til dćmis arđgreiđslur vegna ársins 2006 ákveđnar á ađalfundum félaganna í ársbyrjun 2007 ţegar áriđ 2006 var gert upp. Rétt er einnig ađ hafa í huga ađ samkvćmt 49. gr. laga nr. 60/1994 um vátryggingastarfsemi er heimilt ađ greiđa yfirfćrđan hagnađ frá fyrri árum, enda sé ljóst ađ félagiđ uppfylli kröfur um tilskiliđ lágmarksgjaldţol, ţess hafi veriđ gćtt ađ leggja til hliđar nćgilegt fé fyrir vátryggingaskuld félagsins, svo og ađ settum reglum um mat á eignum félagsins og fyrningu ţeirra hafi veriđ fylgt.

Í töflunni hér ađ neđan kemur m.a. fram ađ öll félögin ţrjú greiddu arđ vegna ársins 2006 og ađ međaltali námu arđgreiđslurnar 55% af hagnađi. Einungis eitt af félögunum greiddi arđ vegna ársins 2007 og enginn arđur var greiddur vegna ársins 2008.

Arđgreiđslur 2006-2008

Upprunalegu fréttatilkynningu FME má einnig nálgast hér.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



Tungumál


Útlit síđu:

Undirsíđa 01
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.