Fréttir
Samkomulag stjórnvalda og skilanefndar Kaupţings undirritađ
Íslensk stjórnvöld og skilanefnd Kaupţings hafa undirritađ samning um uppgjör vegna eigna sem fćrđar voru úr Kaupţingi yfir í Nýja Kaupţing í október s.l. og er hann í samrćmi viđ samkomulag sem kynnt var 20. júlí s.l. Eins og tilkynnt var ţann 14. ágúst s.l. hefur ríkissjóđur nú veitt Nýja Kaupţingi eigiđfé í formi ríkissskuldabréfa upp á 72 milljarđa króna. Bankinn stendur ţar međ á traustum fjárhagslegum grunni međ 12% eiginfjárhlutfall.
Samningurinn felur í sér, líkt og tilkynnt var ţann 20. júlí s.l., ađ skilanefnd Kaupţings, ađ undangengnu samráđi viđ kröfuhafa, á ţess kost fram til 31. október n.k. ađ eignast 87% hlutafjár í Nýja Kaupţingi. Ţar međ yrđi hlutur íslenska ríkisins 13% og stór hluti eiginfjárframlags ţess gengi til baka. Nýti kröfurhafar sér ekki ţennan kost mun íslenska ríkiđ áfram verđa eigandi bankans en kröfuhafar munu ţó hafa kauprétt á allt ađ 90% hlutafjár í bankanum á árunum 2011 til 2015 á kjörum sem tryggja ríkinu eđlilegt endurgjald fyrir fjárfestingu sína í bankanum.
Fréttatilkynningu fjármálaráđuneytisins má einnig nálgast hér.

