Fréttir

Lokauppgjöri milli Landsbankans og NBI fari fram eigi síðar en 9. október næstkomandi

21.9.2009

Með heimild í VI. ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. IV. ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 44/2009 (áður 100. gr. a. í lögum nr. 161/2002, sbr. 5 gr. laga nr. 125/2008), tekur Fjármálaeftirlitið eftirfarandi ákvörðun:

FORSENDUR:

Í ákvörðun Fjármálaeftirlitsins þann 14. ágúst 2009 var tilgreint að útgáfu fjármálagernings og fjármmögnun NBI hf. skyldi lokið eigi síðar en þann 18. september 2009 og lokauppgjöri vegna ráðstöfunar eigna og skulda Landsbanka Íslands hf. til NBI hf. eigi síðar en þann 30. september 2009.

Í bréfi til Fjármálaeftirlitsins frá fjármálaráðuneytinu og Landsbanka Íslands hf., dags. 18. september 2009, óska samningsaðilar eftir frekari fresti til samninga og frágangs fjármálagernings um uppgjör vegna ráðstöfunar eigna og skulda Landsbanka Íslands hf. til NBI hf.

Í ljósi framangreinds ákveður Fjármálaeftirlitið að breyta 2. ml. 13. tl. fyrri ákvörðunar eftirlitsins þann 9. október 2008, sbr. ákvarðanir eftirlitsins í þessu máli, dags. 15. júní 2009, 18. júlí 2009 og 14. ágúst 2009.

ÁKVÖRÐUN:

Fjármögnun NBI hf. og útgáfa fjármálagernings um lokauppgjör vegna ráðstöfunar eigna og skulda Landsbanka Íslands hf. til NBI hf. skal lokið eigi síðar en þann 9. október 2009.

Önnur ákvæði fyrri ákvarðana í þessu máli eru óbreytt.

Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins má nálgast hér í heild sinni





Tungumál


Útlit síðu:

Undirsíða 4
Þetta vefsvæði byggir á Eplica