Fréttir
Bankasýsla ríkisins tekur til starfa
Fjármálaráđherra hefur skipađ í stjórn Bankasýslu ríkisins og hefur hún formlega tekiđ til starfa. Bankasýsla ríkisins starfar samkvćmt lögum nr. 88/2009 og er ćtlađ ađ fara međ eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtćkjum, í samrćmi viđ lög, góđa stjórnsýslu- og viđskiptahćtti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma, og leggur ţeim til fé fyrir hönd ríkisins á grundvelli heimilda í fjárlögum.
Í stjórn Bankasýslu ríkisins eru skipuđ ţau Ţorsteinn Ţorsteinsson, rekstrarhagfrćđingur, stjórnarformađur, Sonja María Hreiđarsdóttir, lögmađur, varformađur, Sigurđur B. Stefánsson, hagfrćđingur og Guđrún Johnsen, hagfrćđingur, til vara. Skipun ţeirra er ótímabundin, en Bankasýslan skal hafa lokiđ störfum eigi síđar en 5 árum eftir ađ hún er sett á fót. Međal fyrstu verkefna stjórnarinnar verđur ađ auglýsa starf forstjóra Bankasýslu ríkisins laust til umsóknar og ađ skipa í valnefnd sem ćtlađ er ađ velja fulltrúa í stjórn fjármálafyrirtćkja sem stofnunin fer međ eignarhald á.
Ţađ er mat fjármálráđherra ađ í nýskipađri stjórn búi stađgóđ og breiđ ţekking á viđfangsefnum Bankasýslu ríkisins enda uppfylli stjórnarmenn ţau hćfnisskilyrđi sem kveđiđ er á um í 6. gr. laga um hana.
Bankasýsla ríkisins skal samkvćmt lögum leggja áherslu á endurreisn og uppbyggingu öflugs innlends fjármálamarkađar og stuđla ađ virkri og eđlilegri samkeppni á ţeim markađi, tryggja gagnsći í allri ákvarđanatöku varđandi ţátttöku ríkisins í fjármálastarfsemi og tryggja virka upplýsingamiđlun til almennings.
Fréttatilkynningu fjármálaráđuneytisins má einnig nálgast hér.

