Fréttir

Stofnefnahagsreikningur Íslandsbanka birtur

28.9.2009

Fréttatilkynning Íslandsbanka - Reykjavík 28. september 2009

  • Heildareignir bankans eru um 629 milljarðar
  • Útlánasafn bankans vel dreift
  • Verðtryggingar- og gjaldeyrisójöfnuður bankans viðráðanlegur

Í kjölfar þess að samningar tókust á milli Íslandsbanka, skilanefndar Glitnis, fyrir hönd kröfuhafa og íslenska ríkisins hefur Íslandsbanki ákveðið að birta stofnefnahagsreikning bankans og er hann dagsettur 15 október 2008.

Heildareignir um 629 milljarðar króna

Samkvæmt nýbirtum stofnefnahagsreikningi eru eignir Íslandsbanka um 629 milljarðar.

Helstu liðir á eignahlið stofnefnahagsreikningsins eru lausafé að fjárhæð ríflega 53 milljarðar, útlán til viðskiptavina um 477 milljarðar og ógreitt hlutafjárloforð að fjárhæð rúmlega 64 milljarðar króna. Þessi upphæð hefur nú verið að fullu greidd til bankans sem eiginfjárframlag ríkisins.

Útlánasafn bankans er vel dreift en um 32% útlána eru til einstaklinga, um 16% til sjávar-útvegsfyrirtækja, 14% til fasteignafélaga, 11% til fjár-festingafélaga og 27% til annarra atvinnugreina.

Stofnefnahagsreikningur Íslandsbanka á móðurfélagsgrunni
Dagsetning 15.10.2008
Eignir ISK milljónir
Sjóður og innstæður í Seðlabanka            53,829
Lán til fjármálafyrirtækja              8,411
Lán til viðskiptavina         477,069
Skuldabréf              3,762
Hlutabréf              3,095
Fjárfestingar í dótturfélagi            11,012
Rekstrarfjármunir              1,475
Fastafjármunir                 504
Ógreidd hlutafjárloforð*           64,225
Aðrar eignir             5,878
Samtals eignir         629,260
 
Skuldir og eigið fé  
Innlán frá fjármálafyrirtækjum            51,891
Önnur innlán          372,144
Aðrar skuldir            88,225
Skuldabréf vegna samninga við Glitni            52,000
   
Samtals skuldir         564,260
Hlutafé            65,000
Skuldir og eigið fé samtals

629,260

*Hefur nú verið að fullu greitt til bankans sem eiginfjárframlag ríkisins.

 

Innlán um 424 milljarðar

Á skuldahlið efnahagsreikningsins nema innlán frá viðskiptavinum samtals um 424 milljörðum. Innlánin skiptast í innlán fyrirtækja og einstaklinga, samtals um 372 milljarðar og innlán frá fjármálastofnunum, samtals um 52 milljarðar. Aðrar skuldir eru samtals um 83 milljarðar króna. Þá nemur skuldabréf vegna samninga við Glitni samtals um 52 milljörðum króna en það skuldabréf fellur niður kjósi kröfuhafar að eignast 95% í Íslandsbanka.

Verðtryggingar- og gjaldeyrisójöfnuður

Íslandsbanki hefur náð að breyta umtalsverðum hluta óverðtryggðra skulda sinna í verðtryggðar skuldir. Þetta hefur minnkað verðtryggingarójöfnuð bankans og er ójöfnuðurinn metinn ásættanlegur miðað við núverandi aðstæður.

Við upphaflegan flutning á eignum og skuldum Glitnis yfir til Íslandsbanka var töluverður munur á myntsamsetningu þeirra. Eignirnar, sem eru aðallega útlán, eru að verulegu leyti í erlendri mynt en skuldirnar eru aðallega innlán í ISK frá innlendri starfsemi.

Nokkur hluti útlána bankans í erlendri mynt er til viðskiptavina sem eru með tekjustreymi í íslenskum krónum og eru þau lán að verulegu leyti meðhöndluð sem útlán í ISK. Það er mat bankans að núverandi gjaldeyrisójöfnuður bankans sé vel viðráðanlegur.

Áætlanir Íslandsbanka gera ráð fyrir að hann sé rekinn með ásættanlegri arðsemi.

Breytingar frá birtingu bráðbirgðaefnahagsreiknings

Fjármálaeftirlitið birti þann 14. nóvember 2008 bráðabirgðaefnahagsreikning bankans. Samkvæmt honum voru heildareignir nýja bankans nokkuð hærri en samkvæmt nýbirtum stofnefnahagsreikningi. Það skýrist í meginatriðum af því að við endanlega ákvörðun um yfirfærslu á eignum var ákveðið að yfirtaka færri lán en gert hafði verið ráð fyrir í bráðabirgðaefnahagsreikningnum.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

,,Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að stofnefnahagsreikningur bankans liggi nú fyrir þar sem hann skapar bankanum traustan starfsgrundvöll. Þessi nýi stofnefnahagsreikningur er sá grunnur sem við þurfum til þess að geta þjónað heimilum og fyrirtækjum í landinu. Samsetning stofnefnahagsreikningsins endurspeglar ákveðið afturhvarf til hefðbundinnar bankastarfsemi þar sem útlán eru að stærstum hluta fjármögnuð með innlánum viðskiptavina.”

Fréttatilkynningu Íslandsbanka má einnig nálgast hér.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



Tungumál


Útlit síðu:

Undiríða 7
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.