Fréttir

Føroya Banki eignast meirihluta í Verði tryggingum

5.10.2009

Í dag var undirritað samkomulag á milli hluthafa Varðar trygginga hf. og Føroya Banka um aðkomu bankans að tryggingafélaginu. Samkvæmt samkomulaginu auka Føroya Banki og núverandi hluthafar Varðar, SP-Fjármögnun hf., NBI hf. og Byr sparisjóður, hlutafé félagsins um 700 milljónir króna. Með kaupum á hlutafé af núverandi hluthöfum fyrir 550 milljónir króna og 600 milljóna króna hlutafjáraukningu nemur fjárfesting Føroya Banka samtals 1.150 milljónum króna. Eignast bankinn þannig 51% hlut í Verði og verður félagið dótturfélag Føroya Banka. Núverandi hluthafar verða áfram virkir meðeigendur þannig að hluthafahópur Varðar bæði stækkar og eflist.

Með fjárfestingu Føroya Banka í Verði kemur öflugt erlent fjármálafyrirtæki inn á íslenskan markað. Staða Varðar styrkist til muna, eiginfjárstaða félagsins eftir hlutfjáraukningu verður um 1.300 milljónir króna og uppfyllir félagið þar með þær gjaldþolskröfur sem til þess eru gerðar. Þá verður félagið í sterkri stöðu til áframhaldandi uppbyggingar. Føroya Banki er með yfir 40% markaðshlutdeild á bankamarkaði í Færeyjum og hefur afkoma bankans verið góð undanfarin ár. Fjárhagslegur styrkur Føroya Banka er mikill og eiginfjárhlutfall með því hæsta á Norðurlöndum.

Vörður hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum. Síðastliðin þrjú ár hefur félagið tvöfaldast að stærð og eykst nú styrkur þess til áframhaldandi sóknar á íslenskum tryggingamarkaði. Viðskiptavinir Varðar eru nú liðlega 28.000 og er markaðshlutdeild félagsins á einstaklingsmarkaði um 13% en heildarhlutdeild í iðgjöldum á vátryggingamarkaði er um 9%. Hagnaður er af rekstri Varðar fyrstu níu mánuði árins 2009 í samræmi við áætlanir félagsins. Hjá Verði tryggingum starfa ríflega 50 manns.

„Það er í senn mikilvægt fyrir Ísland og íslenskan fjármálamarkað að fá öflugan erlendan fjárfesti inn á markaðinn og um leið viðurkenning fyrir félagið og starfsfólk þess að Føroya Banki vilji koma að félaginu með jafn afgerandi hætti og nú hefur verið staðfest. Félagið hefur vaxið mikið á undanförnum árum og mikilvægt að tryggja enn frekar stöðu þess,“ segir Kjartan G. Gunnarsson, stjórnarformaður Varðar.

„Samhliða bankastarfseminni hefur Føroya Banki verið í tryggingastarfsemi í Færeyjum undanfarin 10 ár með góðum árangri í gegnum tryggingafélagið Trygd. Fjárfesting í meirihluta í Verði tryggingum hf. er góð viðbót við tryggingastarfsemi bankans. Markaðshlutdeild bankans á bankamarkaði í Færeyjum er yfir 40% en bankinn stefnir að auknum vexti utan Færeyja í samræmi við vaxtarstefnu bankans. Við væntum mikils af samstarfinu við Vörð og hluthafa félagsins sem styðja munu félagið áfram,“ segir Janus Petersen, bankastjóri Føroya Banki.

„Bakhjarlar Varðar hafa verið traust innlend fjármálafyrirtæki og samstarf við þau og stuðningur þeirra hefur verið mikill. Að fá Føroya Banka til liðs við eigendahópinn nú er mikið fagnaðarefni og gerir félaginu bæði kleift að sækja fram og efla þjónustuna við þann góða hóp sem þegar er í viðskiptum við okkur,“ segir Guðmundur J. Jónsson, forstjóri Varðar.

Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins á Íslandi, í Danmörku og Færeyjum og Samkeppniseftirlitsins á Íslandi. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans veitti hluthöfum Varðar ráðgjöf við viðskiptin.

Um Føroya Banka

Føroya Banki er með yfir 40% markaðshlutdeild á bankamarkaði í Færeyjum og hefur afkoma bankans verið góð undanfarin ár. Fjárhagslegur styrkur Føroya Banka er mikill og eiginfjárhlutfall með því hæsta á Norðurlöndum. Heildarútlán og ábyrgðir bankans nema 7,4 milljörðum DKK (yfir 180 milljarðar ISK) og innlán nema 5,5 milljörðum DKK (135 milljarðar ISK). Eigið fé bankans er 1,6 mlljarðar DKK (39 milljarðar ISK). Eiginfjárhlutfall bankans á CAD-grunni er um 25%. Hagnaður bankans á fyrri hluta árs 2009 var um 87,6 milljónir DKK (2,1 milljarður ISK).

Føroya Banki rekur dótturfélag á tryggingamarkaði, Trygd. Starfsmenn hjá Trygd eru 23 og markaðshlutdeild félagsins um 22% á tryggingamarkaði í Færeyjum. Hagnaður Trygd fyrir skatta nam á fyrri hluta árs 2009 13 milljónum DKK (318 milljónum ISK).

Føroya Banki er með 230 starfsmenn í höfuðstöðvum bankans í Þórshöfn, níu útibúum og dótturfélögum.

Saga bankans nær aftur til ársins 1906 þegar Føroya Banki var stofnaður, fyrsti banki Færeyja. Sjóvinnubankin var stofnaður 1932, en í kjölfar erfiðleika bankanna í Færeyjum voru bankarnir sameinaðir 1994.

Føroya Banki lýtur dönskum og færeyskum lögum og eftirliti danska fjármálaeftirlitsins og hefur sambærilega stöðu og danskir bankar. Føroya Banki er skráður í kauphöll í Danmörku og á Íslandi. Bankinn er einn af tíu stærstu bönkum Danmerkur miðað við markaðsvirði. Eignarhald bankans er dreift en sjóður í eigu færeysku landsstjórnarinnar er stærsti hluthafi bankans með 33% hlut.

Gert er ráð fyrir að fjárfestingin í Verði hafi jákvæð fjárhagsleg áhrif á samstæðu Føroya Banka frá árinu 2010, en gefi ekki ástæðu til endurskoðunar á útgefnu arðsemisviðmiði fyrir 2009.

Fréttatilkynningu Varðar trygginga hf. má einnig nálgast hér.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



Tungumál


Útlit síðu:

Undirsíða 2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.