Fréttir
Starfsmannatölfræði aðildarfélaga SFF - Q2 2009
Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa sett af stað staðlaða tölfræðisöfnun um starfsmannahald sem nær til allra aðildarfélaga SFF. Markmiðið er að safna upplýsingum ársfjórðungslega um fjölda virkra starfsmanna, greidd stöðugildi og aldursskiptingu starfsfólks og birta á vef samtakanna. Eingöngu eru taldir starfsmenn sem eru virkir í starfi og ekki í langtímaleyfi eða fæðingarorlofi. Ekki eru taldir með starfsmenn í ræstingu eða mötuneyti.
Til samanburðar eru tölur um starfsmannafjölda sem SFF safnaði fyrir árslok 2007 og 2008 en þær tölur sýna að starfsfólki fækkaði frá árinu 2007 um 13% til ársloka 2008 en um tæpan fjórðung frá árinu 2007 til loka 2. ársfjórðungs 2009.
Ekki er mikil breyting á heildar starfsmannafjölda eða greiddra stöðugilda milli ársfjórðunga. Hins vegar má merkja að starfsfólki í hlutastarfi hefur fækkað en starfsfólki í fullu starfi aftur á móti fjölgað milli 1. og 2. ársfjórðungs 2009. Um 500 sumarstarfsmenn voru ráðnir sumarið 2009.
Starfsmannafjöldi aðildarfélaga SFF 2007-2009
|
2007 |
2008 |
Q1 2009 |
Q2 2009 |
|
|
Greidd stöðugildi |
5974 |
5192 |
4506 |
4515 |
Virkir* starfsmenn aðildarfélaga SFF 2009
| Q1 2009 | Q2 2009 | |
|---|---|---|
|
Fjöldi: |
4692 |
4696 |
|
Í fullu starfi |
4176 |
4250 |
|
Í hlutastarfi |
516 |
446 |
|
Hlutfall karla og kvenna af heildarfjölda: |
|
|
|
Karlar |
37% |
37% |
|
Konur |
63% |
63% |
|
Greidd stöðugildi |
4506 |
4515 |
|
Meðalaldur: |
42 |
43 |
|
Karlar |
39 |
41 |
|
Konur |
43 |
44 |
|
Hlutfallsleg aldursskipting: |
|
|
|
20-29 ár |
15% |
14% |
|
30-39 ár |
29% |
30% |
|
40-49 ár |
28% |
28% |
|
50-59 ár |
20% |
21% |
|
60+ ár |
7% |
8% |
*Virkir starfsmenn eru allir starfsmenn sem eru ekki í langtímaleyfi (fjarverandi meira en 2 mánuði) eða fæðingarorlofi. Ekki eru taldir með starfsmenn í ræstingu eða mötuneyti.
Sumarstarfsmenn** á 2. ársfjórðungi 2009
| Fjöldi í fullu starfi |
484 |
| Fjöldi í hlutastarfi |
31 |
| Samtals fjöldi |
515 |
| Greidd stöðugildi |
499 |
**Tölfræði fyrir sumarstarfsmenn blandast ekki annarri tölfræði yfir starfsmenn fjármálafyrirtækja.
Nákvæmari sundurliðun á starfsmannafjölda og skiptingu niður á einstaka geira innan SFF má nálgast hér að neðan:
SFF - Tölfræði um starfsmannahald í lok 2. ársfjórðungs 2009

