Úrskurður Áfrýjunarnefndar neytendamála SBV (nú SFF) gegn Neytendastofu -

31 okt. 2007

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi úrskurð Neytendastofu frá í sumar. Neytendastofa taldi að Samtök banka og verðbréfafyrirtækja - SBV (nú Samtök fjármálafyrirtækja ? SFF) hefðu brotið gegn 2. mgr. 6. gr. laga nr. 57/2005, um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins, með því að auglýsa í sjónvarpi niðurstöður könnunar á þjónustugjöldum norrænna banka. Könnunin, sem GJ fjármálaráðgjöf vann fyrir SBV (nú SFF) leiddi m.a. í ljós að þjónustugjöld á Íslandi voru að jafnaði lægri en í hinum norrænu ríkjunum.

Fram kemur í úrskurði áfrýjunarnefndar að umræddar auglýsingar hafi haft að geyma hvatningu til neytenda um að kynna sér efni könnunarinnar á vefslóð samtakanna. Fyrir hafi legið að Neytendasamtökin hafi ítrekað á árunum 2002 og 2003 fullyrt að þjónustugjöld banka á Íslandi væru hærri en þjónustugjöld erlendra fjármálafyrirtækja. SBV (nú SFF) hafi því látið vinna fyrir sig umrædda könnun og auglýsingarnar byggðust á þeim upplýsingum sem þar var að finna. Þá hafi efni skýrslunnar og forsendur verið birtar með aðgengilegum hætti. Ekki verði því talið að auglýsingarnar hafi verið ósanngjarnar gagnvart neytendum.

Frekari upplýsingar veitir Ólafur Páll Gunnarsson, s. 591 0404.



Tungumál


Útlit síðu:

Undirsíða 3
Þetta vefsvæði byggir á Eplica