Fréttir
Endurreisn bankanna lokiđ
Fréttatilkynning fjármálaráđuneytisins - 17. desember 2009
Helstu atriđi:
- Hlutafjárframlag ríkissjóđs 250 ma.kr. lćgra en upphaflega var ráđgert.
- 46 ma.kr. lćgri vaxtakostnađur árin 2009 og 2010.
- Allir bankarnir standa nú á traustum grunni.
Endurreisn íslensku viđskiptabankanna er lokiđ. Gengiđ hefur veriđ frá samningum, á milli íslenskra stjórnvalda og nýju bankanna, annars vegar, og skilanefnda Glitnis, Landsbanka Íslands og Kaupţings, fyrir hönd kröfuhafa, hins vegar, um uppgjör vegna eigna sem fćrđar voru úr gömlu bönkunum yfir í ţá nýju í október 2008. Arion banki, Landsbankinn og Íslandsbanki eru nú fullfjármagnađir bankar sem standa á traustum fjárhagslegum grunni tilbúnir til ţess ađ ţjóna heimilum landsins og atvinnulífi.
Alls nemur hlutafjárframlag ríkisins til bankanna 135 ma.kr. Upphaflega var gert ráđ fyrir ađ ţetta framlag yrđi 385 ma.kr. og er ţađ ţví 250 ma.kr. lćgra. Auk ţess veitir ríkiđ tveim bönkum víkjandi lán: Arion banka ađ fjárhćđ 24 ma.kr. og Íslandsbanka ađ fjárhćđ 25 ma.kr. Samtals nemur fjárbinding ríkissjóđs vegna endurreisnar bankanna ţví 184 ma.kr.
| Banki |
Heildar hlutafé (ma.kr.) |
Hlutafé ríkis (ma.kr.) |
Hlutur ríkis (%) |
Víkjandi lán frá ríki (ma.kr.) |
Heildar fjárbinding ríkis (ma.kr.) |
|
|---|---|---|---|---|---|---|
|
Arion banki |
72 |
9,36 |
13 |
13 |
33,36 |
|
|
Íslandsbanki |
65 |
3,25 |
5 |
25 |
28,25 |
|
|
Landsbankinn |
150 |
122 |
81 |
0 |
122 |
|
|
Samtals |
287 |
134,61 |
- |
49 |
183,61 |
|
Niđurstađan er mjög hagstćđ fyrir ríkissjóđ og leiđir hún til ţess ađ vaxtagjöld ríkissjóđs verđa samtals um 46 ma.kr. lćgri árin 2009 og 2010 en ţau hefđu orđiđ miđađ viđ upphaflegar áćtlanir. Af ţví vegur sú niđurstađa ađ kröfuhafar Kaupţings og Glitnis eignast Arion banka og Íslandsbanka ţungt, en hún leiđir til samtals 21 ma.kr. lćgri vaxtakostnađar árin 2009 og 2010.
Ríkiđ á hlut öllum bönkunum ţremur, mest í Landsbankanum, 81%, 13% í Arion banka og 5% í Íslandsbanka. Ţessir eignarhlutir gefa ríkinu fjögur sćti í stjórn Landsbankans og eitt sćti í hvorum hinna tveggja. Bankasýsla ríkisins mun fara eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtćkjum og annast hún öll samskipti viđ fjármálafyrirtćki í eigu ríkisins fyrir ţess hönd. Ţá hefur stjórn Bankasýslunnar ţađ hlutverk ađ skipa fulltrúa ríkisins í stjórnir fjármálafyrirtćkja sem ţađ á eignarhlut í á grundvelli tilnefningar sérstakrar valnefndar. Bankasýslan og fulltrúar ríkisins í stjórnum fjármálafyrirtćkja starfa á grundvelli eigendastefnu ríkisins í fjármálafyrirtćkjum. Megininntak hennar er ađ stuđla ađ uppbyggingu heilbrigđs og öflugs fjármálakerfis sem ţjónar hagsmunum íslensks samfélags, ađ byggja upp traust og trúverđugleika á íslenskum fjármálamarkađi og ađ ríkiđ fái arđ af ţví fé sem ţađ leggur til íslenskra fjármálafyrirtćkja.
Í febrúar síđastliđnum tók ríkisstjórnin ákvörđun um ađ setja vinnu viđ endurreisn bankanna í nýjan og fastan farveg. Settur var á fót stýrihópur ţriggja ráđuneyta, forsćtisráđuneytis, efnahags- og viđskiparáđuneytis auk fjármálaráđuneytis sem hafđi forystu í málinu. Í framhaldi var Ţorsteinn Ţorsteinsson ráđinn til fjármálaráđuneytisins sem ađalsamningamađur stjórnvalda í samningaviđrćđum viđ skilanefndirnar ásamt breska ráđgjafafyrirtćkinu Hawkpoint.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráđherra um niđurstöđuna: „Ţeir sem boriđ hafa hitann og ţungann af ţessu viđamikla og flókna ferli hafa unniđ ţrekvirki. Ţessi niđurstađa léttir miklum byrđum af ríkissjóđi, sér í lagi vaxtagjöldum á nćstu árum. Viđ eigum nú ţrjá heilbrigđa og fullfjármagnađa banka sem geta nú einbeitt sér ađ ţví ađ veita heimilinum í landinu og atvinnulífinu nauđsynlega ţjónustu. Ţessar góđu fréttir eru gott veganesti inn í nýtt ár ásamt fréttum af lćgri vöxtum, lćgri verđbólgu, minna atvinnuleysi og jafnvel hagvexti á nćsta ári.“
Upprunalegu fréttatilkynningu fjármálaráđuneytisins má einnig nálgast hér.
Og á heimasíđu fjármálaráđuneytisins.

