Fréttir

Moody´s breytir horfum á lánshæfismati Íslands í stöðugar

23.4.2010

Matsfyrirtækið Moody's breytti í dag horfum á lánshæfismati Ríkissjóðs Íslands, Baa3 á erlendum og innlendum langtímaskuldbindingum, í stöðugar úr neikvæðum. Horfum fyrir lánshæfisþak erlendra skuldbindinga var einnig breytt í stöðugar úr neikvæðum. Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar ríkissjóðs er P-3. Breytingin á horfum á rætur sínar að rekja til bættrar erlendrar lausafjárstöðu Ríkissjóðs Íslands vegna endurnýjunar fjármögnunar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og ríkisstjórnum Norðurlanda.

Fréttatilkynningu Moody´s má einnig nálgast hér.





Tungumál


Útlit síðu:

Undiríða 7
Þetta vefsvæði byggir á Eplica