Fréttir

Breytingar á reglum um gjaldeyrismál

30.4.2010

Seðlabanki Íslands hefur gefið út nýjar reglur um gjaldeyrismál í samræmi við ákvæði laga um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, með síðari breytingum, þar sem mælt er fyrir um að reglur um gjaldeyrismál skuli endurskoðaðar á sex mánaða fresti. Nýju reglurnar taka gildi í dag, 30. apríl 2010. Þær breytingar sem hafa verið gerðar á eldri reglum fela að mestu í sér orðlagsbreytingar til að tryggja samræmi í skýringu og túlkun þeirra. Þá mæla þær fyrir um lækkun á hámarksfjárhæð heimildar til kaupa á erlendum gjaldeyri í reiðufé vegna ferðalaga, sem breytist nánar tiltekið úr 500.000 krónum í hverjum almanaksmánuði í 350.000 krónur. Jafnframt hefur verið gerð breyting á sérstökum undanþágum til að taka af allan vafa um ólögmæti svokallaðra aflandsviðskipta.

Reglur um gjaldeyrismál Nr. 370, frá 29. apríl 2010 má nálgast hér.

Fréttatilkynningu Seðlabankans má einnig nálgast hér.





Tungumál


Útlit síðu:

Undiríða 7
Þetta vefsvæði byggir á Eplica