Starfsmannatölfræði aðildarfélaga SFF - Q4 2009
Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa sett af stað staðlaða tölfræðisöfnun um starfsmannahald sem nær til allra aðildarfélaga SFF. Markmiðið er að safna upplýsingum tvisvar á ári um fjölda virkra starfsmanna, greidd stöðugildi og aldursskiptingu starfsfólks og birta á vef samtakanna. Eingöngu eru taldir starfsmenn sem eru virkir í starfi og ekki í langtímaleyfi eða fæðingarorlofi. Ekki eru taldir með starfsmenn í ræstingu eða mötuneyti.
Til samanburðar eru tölur um starfsmannafjölda sem SFF safnaði fyrir árslok 2007 og 2008 en þær tölur sýna að starfsfólki fækkaði frá árinu 2007 um 13% til ársloka 2008 en um tæpan fjórðung frá árinu 2007 til loka 2. ársfjórðungs 2009. Ekki var mikil breyting í fjölda greiddra stöðugilda milli ársfjórðunga á árinu 2009.
Um 500 sumarstarfsmenn voru ráðnir sumarið 2009.
Nákvæmari sundurliðun á starfsmannafjölda og skiptingu niður á einstaka geira innan SFF árið 2009 má nálgast hér:
Starfsmannatölfræði aðildarfélaga SFF 2009
Samantekt á niðurstöðum má sjá hér að neðan:
Starfsmannafjöldi aðildarfélaga SFF 2007-2009
| 2007 | 2008 | 2009 | |
|---|---|---|---|
| Greidd stöðugildi | 5974 | 5192 | 4540 |
Virkir* starfsmenn aðildarfélaga SFF 2009
| Q1 2009 | Q2 2009 | Q4 2009 | |
|---|---|---|---|
| Fjöldi: | 4692 | 4696 | 4793 |
| Í fullu starfi | 4176 | 4250 | 4247 |
| Í hlutastarfi | 516 | 446 | 546 |
| Hlutfall karla og kvenna af heildarfjölda: | |||
| Karlar | 37% | 37% | 37% |
| Konur | 63% | 63% | 63% |
| Greidd stöðugildi | 4506 | 4515 | 4540 |
| Meðalaldur: | 42 | 43 | 43 |
| Karlar | 39 | 41 | 41 |
| Konur | 43 | 44 | 44 |
| Hlutfallsleg aldursskipting: | |||
| 20-29 ár | 15% | 14% | 13% |
| 30-39 ár | 29% | 29% | 30% |
| 40-49 ár | 28% | 28% | 28% |
| 50-59 ár | 20% | 21% | 21% |
| 60+ ár | 7% | 7% | 8% |
*Virkir starfsmenn eru allir starfsmenn sem eru ekki í langtímaleyfi (fjarverandi meira en 2 mánuði) eða fæðingarorlofi. Ekki eru taldir með starfsmenn í ræstingu eða mötuneyti.
Sumarstarfsmenn** á 2. ársfjórðungi 2009
| Fjöldi í fullu starfi | 484 |
| Fjöldi í hlutastarfi | 31 |
| Samtals fjöldi | 515 |
| Greidd stöðugildi | 499 |

