Fréttir

Að gefnu tilefni

5.5.2010

Að gefnu tilefni vilja Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) koma eftirfarandi á framfæri í tengslum við yfirlýsingu Félags íslenskra bifreiðareigenda (FÍB) um nýlega skoðanakönnun um viðhorf almennings til vátryggingasvika.

Skoðanakannanir sem mæla viðhorf almennings til vátryggingasvika eru framkvæmdar með reglulegum hætti á Norðurlöndunum og öðrum ríkjum Evrópu. Í kynningu SFF á niðurstöðu skoðanakönnunar sem Gallup vann fyrir samtökin eru hvergi fullyrðingar um umfang vátryggingasvika hér á landi, en bent á að ef tekið sé mið af rannsóknum í nágrannaríkjum og horft til heildar bótagreiðslna hérlendis árið 2008 megi ætla að umfang þeirra geti numið a.m.k. 3 milljörðum króna. Þar horfðu SFF sérstaklega til skýrslu Association of British Insurers (ABI) frá því í júlí 2009 þar sem dregnar eru saman niðurstöður úr könnun á vátryggingasvikum í nokkrum ríkjum. Tafla á blaðsíðu 4 úr skýrslunni sýnir að algengasta niðurstaðan sé að áætlað hlutfall vátryggingasvika sé á bilinu 10-15%.

Table 4 International estimates of general insurance claims fraud

Country Product line Estimate Source
 United Kingdom  Retail  7% of claims (by value)  ABI (2007)
 Australia  General  10% of claims (by value)  ICA (1994)
 United States (Arizona)  General  10% of claims (by volume)  ADI (2009)
 United States  General  10% of claims (by volume)  Hoyt (1998)
 United Kingdom  General  10% of claims (by value)  ABI (2009)
 Canada  General  10-15% of premiums  IBoC (2006)
 United States  Motor  11-15% of claims (by value)  IRC (2008)
 Germany  Motor  11% of claims (by volume)  Clarke (1990)
 United Kingdom  Retail  11% of claims (by volume)  ABI (2007)
 United Kingdom  General  13% of claims (by volume)  ABI (2009)
 United States  General  15% of claims (by value)  Hoyt (1988)
 Spain  Motor  22% of claims (by volume)  Artis et al. (1999)

Slóð á skýrslu ABI má nálgast hér: http://www.abi.org.uk/Publications/ABI_Publications_GI_Fraud_Research_Brief_30e.aspx

FÍB benda réttilega á að samkvæmt viðhorfskönnuninni líta langflestir landsmanna vátryggingasvik alvarlegum augum. Það breytir því þó ekki að niðurstöðurnar endurspegla að samt sem áður sé ansi hátt hlutfall svarenda sem þekkir til einhvers sem hefur fengið tryggingabætur sem hann átti ekki rétt á. Hafa þarf í huga að vátryggingasvik eru ekki sér á báti og mikil opinber umræða hefur farið fram um tryggingasvik í almannatryggingakerfinu á undanförnum misserum.

Þótt innlend vátryggingafélög hafi ekki beinar tölur um umfang vátryggingasvika á Íslandi þá bendir viðhorfskönnun Gallup til þess að þetta sé vandamál sem sé til staðar hér á landi ekki síður en annar staðar. SFF telja því mikilvægt að leggja sitt á vogarskálarnar til að stuðla að viðhorfsbreytingu til að draga úr umfangi vátryggingasvika.  Ætla mætti að það væri kappsmál fyrir FÍB, ekki síður en vátryggingataka almennt, að minnka umfang vátryggingasvika.

Viðhorfskönnun Capacent-Gallup til vátryggingasvika má nálgast hér.




Tungumál


Útlit síðu:

Undirsíða 4
Þetta vefsvæði byggir á Eplica