Fréttir

Ríkissjóður býðst til að kaupa útistandandi skuldabréf í erlendri mynt

16.6.2010

Birt hefur verið tilkynning þess efnis að Ríkissjóður Íslands bjóðist til þess að leysa til sín skuldabréf sem gefin voru út í evrum og eru með gjalddaga árin 2011 og 2012. Í tilkynningunni kemur fram að ríkissjóður sé tilbúinn til að kaupa skuldabréf ríkisins í evrum fyrir allt að 300 milljónir evra. Fram kemur að um svæðisbundnar takmarkanir er að ræða hvað þátttöku varðar. Nánari upplýsingar verða veittar að útboði loknu.

Sjá nánar í tilkynningu: Announcement_of_Invitation.pdf

Fréttatilkynningu Seðlabankans má einnig nálgast hér.





Tungumál


Útlit síðu:

Undirsíða 6
Þetta vefsvæði byggir á Eplica