Niðurfærsla lána heimilanna 172,6 milljarðar í lok september

10 nóv. 2011

 

Niðurfærsla lána heimilanna 172,6 milljarðar í lok september

 

·         Niðurfærsla vegna 110% leiðar um 31,6 milljarðar króna

·         Niðurfærsla vegna sértækrar skuldaaðlögunar rúmir 6 milljarðar króna

·         Niðurfærsla vegna endurútreiknings erlendra fasteignalána nemur um 96,4 milljörðum króna

·         Niðurfærsla vegna endurútreiknings bílalána nemur rúmum 38,5 milljörðum króna

·         Heildarniðurfærsla lána einstaklinga nemur 172,6 milljörðum króna

 

Lán heimila höfðu í lok september 2011 verið færð niður um 172,6 milljarða króna frá efnahagshruni. Til samanburðar nam niðurfærslan tæpum 144 milljörðum króna í lok júlímánaðar. Í september nam niðurfærsla fasteignalána rúmum níu milljörðum króna samkvæmt upplýsingum sem Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa aflað meðal aðildarfélaga sinna, hjá Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum. Niðurfærsla fasteignalána í mánuðinum nam 4,5 milljörðum króna vegna 110% leiðarinnar,  um 4 milljörðum króna vegna endurútreiknings og hálfur milljarður króna er til kominn vegna sértækrar skuldaaðlögunar

 

Til viðbótar þeirri niðurfærslu sem rakin er hér að ofan, hafa einstök fjármálafyrirtæki boðið upp á önnur úrræði sem lækkað hafa eftirstöðvar skulda viðskiptavina þeirra. 

 

 

Um 75% mála í 110% leiðinni höfðu verið afgreidd í lok september

 

Í lok september lá fyrir að heildarfjöldi umsókna um 110% leiðina var ríflega 16 þúsund, til banka Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóða. Þar af voru um 1.500 mál afgreidd fyrir 1. desember 2010 á grundvelli hliðstæðs úrræðis sem einstök fjármálafyrirtæki buðu. Niðurfærsla samkvæmt  110% leiðinni nam um 4,5 milljörðum króna í september og nemur nú samtals tæpum 31,7 milljörðum króna frá bankahruni. Þann 1. október voru enn ríflega 4.300 mál í vinnslu í 110% leiðinni, langstærstur hluti þeirra hjá ÍLS eða 2.674 mál. Sjóðurinn hafði samþykkt 1.324 erindi og hafnað 1.634. Niðurfærsla ÍLS vegna þessa úrræðis nam í lok september rúmum 3,6 milljörðum króna. Lífeyrissjóðir höfðu í lok september samþykkt 73 umsóknir og hafnað 238 af 407. Niðurfærsla hjá lífeyrissjóðum vegna 110% leiðar nam í lok september tæpum 200 milljónum króna. Ljóst er að niðurfærsla á lánum vegna þessa úrræðis á enn eftir að hækka verulega.

 

Um 1.400 heimili höfðu sótt um sértæka skuldaaðlögun í lok september. Samþykktar höfðu verið ríflega 750 umsóknir en rúmlega 90 verið hafnað, auk þess sem um 550  mál voru enn í vinnslu. Heildarniðurfærsla vegna þessa úrræðis, miðað við septemberlok, er rúmir 6 milljarðar króna.

 

Tugþúsundir lána endurútreiknuð

 

Fjármálafyrirtækin hafa lokið endurútreikningi rúmlega 70 þúsund gengistryggðra lána. Þar af eru rúmlega 13 þúsund fasteignalán og rúm 57 þúsund lán vegna bifreiðaviðskipta. Heildarniðurfærsla fasteignaveðlána vegna endurútreiknings var í lok september rúmir 96 milljarðar króna. Lán vegna bifreiðaviðskipta hafa verið færð niður um 38,5 milljarða króna við endurútreikning.

 

Hafa ber í huga þegar þessar tölur eru skoðaðar að lántakar kunna í sumum tilvikum að hafa nýtt sér fleiri en eitt af þeim úrræðum sem staðið hafa til boða.

 

 


Samandregin skýrsla um skuldaaðlögun heimila
                       
        Staða miðað við lok september  2011          
                       
      Umsóknir Samþykktar Hafnað Í vinnslu Niðurfærsla m.kr.   Niðurfærsla í lok júlí Niðurfærsla í lok ágúst  
  1) 110% leið samtals 16.091 9.363 2.428 4.300 31.668   18.651 27.192  
      a) 110% leið skv. samkomulagi 3. des 2010 14.581 7.853 2.428 4.300 21.804        
      b) 110% leið, 2010, fyrir 3. des. 2010 1.510 1.510 0 0 9.864        
    Þar af Íbúðalánasjóður 5.632 1.324 1.634 2.674 3.635        
    Þar af lífeyrissjóðir 407 73 238 96 198        
                       
      Umsóknir Samþykktar Hafnað Í vinnslu Niðurfærsla m.kr.        
  2) Sértæk skuldaaðlögun 1.401 757 92 552 6.074   5.573 5.585  
                       
                       
      Lán Lokið Í vinnslu Heimili Niðurfærsla m.kr.        
  3) Endurútreikningur gengistryggðra lána                  
        Íbúðalán 13.022 12.385 637 7.458 96.428   78.998 92.417  
        Lán vegna vegna bifreiðaviðskipta 57.280 57.219 61 41.801 38.500   40.648 38.440  
                       
                   Lok ársins 2010  Lok september   2011          
      Fjöldi lána Fjöldi heimila Fjöldi lána Fjöldi heimila Eftirst.lána lok sept. m.kr.        
  4) Lán í óreglulegum greiðslum (frystingar) 7.587 4.675 4.626 3.085 53.335        
                       
      Fjöldi mála Samþykktar Hafnað Í vinnslu Í m.kr.        
    Niðurfærslur og endurútreikningur alls 87.794 79.724 2.520 5.550 172.670   143.870 163.634  

 



Tungumál


Útlit síðu:

Undiríða 7
Þetta vefsvæði byggir á Eplica