Seðlabanki íslands rýmkar veðheimildir

14 jan. 2008

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að rýmka reglur um verðbréf sem teljast veðhæf í reglulegum viðskiptum fjármálafyrirtækja við bankann. Í þessu felst, að fjármálafyrirtæki fá betri aðgang að lánsfé.

Segir bankinn, að breytingarnar miði að því að færa reglur nær því sem gerist í nálægum löndum þannig að rekstrarumhverfi og samkeppnisstaða íslenskra banka verði áþekk því sem erlendir samkeppnisbankar búa við að því er varðar veðlánaviðskipti við seðlabanka.

Meðal nýrra veðhæfra verðbréfa verða nú verðbréf í erlendum gjaldmiðli auk þess sem rýmkaðar verða reglur um sértryggð skuldabréf, samkvæmt nánari skilyrðum sem útfærð verða í reglum Seðlabankans.

Ýmsir seðlabankar hafa rýmkað mögulega lausafjárfyrirgreiðslu sína undanfarnar vikur og mánuði. Á íslenskum millibankamarkaði hafa viðskipti gengið vel fyrir sig, ávöxtun verið í eðlilegu sam­hengi við stýrivexti Seðlabankans og miðlun lauss fjár undan­tekningarlaust verið hnökralaus.





Tungumál


Útlit síðu:

Undirsíða 4
Þetta vefsvæði byggir á Eplica