Fréttatilkynningar

Fræðslufundur Samtaka fjármálafyrirtækja um vaxtamun

5.11.2007

Fræðslufundur Samtaka fjármálafyrirtækja um vaxtamun: Vaxtamunur hefur farið ört lækkandi hér á landi undanfarin ár - segir Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur

Heildarvaxtamunur hefur farið ört lækkandi hér á landi undanfarin 11 ár og er nú sambærilegur við vaxtamun á OECD svæðinu. Heildarvaxtamunur er nú um 2% samanborið við 5% 1995. Þetta kom fram í máli Yngva Arnar Kristinssonar, hagfræðings og forstöðumanns Verbréfasviðs Landsbankans, á fræðslufundi Samtaka fjármálafyrirtækja á Grand Hótel Reykjavík í hádeginu á mánudag.

Yngvi Örn sýndi útreikninga á mismun á vegnu meðaltali útláns- og innlánsvaxta einstaklinga í bankaviðskiptum á Íslandi fyrir árin 2003 og 2006 þar sem fram kom að munurinn hefði lækkað úr 5% 2003 í 3,6% 2006. Til samanburðar sýndu opinberar tölur frá Svíþjóð að munurinn þar hefði verið 3,7% á síðasta ári, sem gæfi til kynna að vaxtaálag banka á íslensk heimili væri svipað og þekkist í hinum Norrænu ríkjunum.

Tilefni fundarins er umræða um vaxtamun í bankaviðskiptum og ólíkar skilgreiningar á hugtakinu en markmiðið var að opna frekar umræðu um vaxtamun og auka skilning á hugtakinu og því sem liggur að baki. Framsögumenn voru þeir Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, og Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbankans. Þá tók Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri upplýsingasviðs Seðlabanka Íslands, þátt í pallborðsumræðum. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ávarpað fundinn í upphafi og sagði sérstakt fagnaðarefni að efnt skyldi til fundar um vaxtamun.

Þorvaldur Gylfason sagði markmið rökræðna um vaxtamun ekki að negla niður eina rétta tölu heldur fanga þróun vaxtamunarins yfir tímabil og samanburð við önnur lönd. Þorvaldur vísaði í alþjóðlegt gagnasafn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og uppfærðar tölur frá Seðlabankanum og sýndi fram á að vaxtamunurinn hefði ekki minnkað við einkavæðingu bankanna, hefði verið 10,7% á síðasta ári. Gangrýndi hann í þessu sambandi stjórnvöld fyrir að einkavæðingin hefði ekki tekist sem skyldi. Þau yrðu að skapa skilyrði sem löðuðu erlenda banka að Íslandi og efldu samkeppni hér á landi.

Yngvi Örn sagðist leitast við að bera saman vexti sem fólk borgaði í raun og veru og sýndi í því sambandi töflur yfir áætlaðan vaxtamun heimilanna 2003 og 2006. Hann sagði vaxtamun hafa farið ört lækkandi á undanförnum árum. Mikil samkeppni væri bæði á inn- og útlánshlið bankaviðskipta en þróunin hefði hafist með opnun fjármagnsmarkaða og nýrri löggjöf um fjármálamarkaðinn eftir 1985. Lækkun vaxtaálags á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hefði ýtt undir lækkun vaxtamunar og einkavæðing fjármálafyrirtækja að líkindum einnig stuðlað að lækkun.

Nánari upplýsingar:

Guðjón Rúnarsson, frkjvstj. Samtaka fjármálafyrirtækja, í síma 698 7110

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



Tungumál


Útlit síðu:

Undirsíða 6
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.