Fjármálafyrirtækjum er skylt að þekkja deili á viðskiptavinum sínum og framkvæma sérstaka áreiðanleikakönnun á þeim. Með áreiðanleika-könnun er átt við upplýsingaöflun um fyrirhuguð viðskipti og könnun á áreiðanleika upplýsinga um viðskiptavin.

Hvenær þarf að framkvæma áreiðanleikakönnun?

Meginreglan er sú að viðskiptavinur fari í gegnum áreiðanleikakönnun við upphaf viðskiptasambands. Þetta þýðir að ef viðskiptavinur er nýr í viðskiptum þá ber fjármálafyrirtæki skylda til að kanna áreiðanleika hans áður en stofnað er til viðskipta.

Þeir viðskiptavinir sem nú þegar eru í viðskiptum en hafa ekki farið í gegnum áreiðanleikakönnun þurfa einnig að sanna á sér deili.

Hvernig fer áreiðanleikakönnun fram?

Viðskiptavinur þarf að gefa upp nafn sitt og aðrar persónugreinanlegar upplýsingar. Til að staðfesta að framangreindar upplýsingar séu réttar skal viðskiptavinur framvísa gildu persónuskilríki sem gefið er út af stjórnvöldum eða er viðurkennt af stjórnvöldum.

skilrikiHvaða skilríki teljast gild persónuskilríki?

  •    VEGABRÉF
  •     ÖKUSKÍRTEINI
  •     NAFNSKÍRTEINI

Hvers kyns greiðslukort, svo sem kredit- eða debetkort með mynd eru ekki löggild skilríki.

 

Eru tekin afrit af skilríkjum?

Fjármálafyrirtækjum er skylt að taka afrit af þeim persónuskilríkjum sem viðskiptavinur framvísar til að sanna á sér deili. Þetta á einnig við um önnur gögn sem viðskiptavinur framvísar og tengjast fyrir-huguðum viðskiptum. Er fjármálafyrirtækjum skylt að varðveita slíkar upplýsingar í fimm ár eftir að viðskiptum lýkur.

 

Hvers vegna þarf að framkvæma áreiðanleikakönnun?

 Áreiðanleikakönnun vegna viðskipta er liður í því að vernda viðskiptavini fyrir auðkennaþjófnaði. Auk þess sem upplýsinga-öflunin er liður í að aðstoða stjórnvöld við að uppræta peninga-þvætti og fjármögnun hryðjuverka. 

 

Með því að sanna á þér deili tryggir þú öryggi þitt í viðskiptum. 

 

Frekari upplýsingar má nálgast hjá næsta banka, sparisjóð eða eignaleigufyrirtæki.





Tungumál


Útlit síðu:

Undirsíða 3
Þetta vefsvæði byggir á Eplica