SWIFT

SWIFT - Society for Worldwide Interbank Financial Telecommunication- var stofnað árið 1973 af 239 bönkum í 15 löndum. Markmiðið var að koma á sameiginlegri alþjóðlegri gagnavinnslu og samskiptagrunni fyrir alþjóðlegar fjármálastofnanir.

Fyrsta skeytið var sent árið 1977 og 30 árum síðar er skeytafjöldinn per dag að meðaltali um 13,7 milljónir. Notendur SWIFT eru samtals 8282 í 208 löndum.

Frekari upplýsinga um SWIFT má finna á www.swift.com

Ísland gerðist aðili að SWIFT í júní 1988. Í dag eru eftirtalin fjármálafyrirtæki aðilar að SWIFT: Arion, Íslandsbanki, Nýja Kaupþing, NBI hf., Seðlabankinn, Byr Sparisjóður, MP banki hf., Kaupþing banki hf., Landsbanki Íslands hf., Verðbréfaskráning, SPRON og Sparisjóðabanki Íslands. Kaupþing, Lands-banki, SPRON og Sparisjóðabankinn eru ennþá með sitt SWIFT opið og heyrir það undir skilanefndir viðkomandi fyrirtækis. Fulltrúar frá þessum bönkum sitja í Lands- og Notendanefnd SWIFT ( National Member and User Group). Þessi nefnd starfar samkvæmt reglum frá SWIFT.

  • Landsnefnd samanstendur af öllum SWIFT hluthöfum í viðkomandi landi og tilnefnir fulltrúa til kosningar í yfirstjórn SWIFT. Nefndin veitir yfirstjórn SWIFT ráðgjöf og stendur vörð um hagsmuni hluthafa með því að samhæfa aðgerðir þeirra. Landsnefnd er stjórnað af formanni sem er kjörinn af hluthöfum SWIFT í viðkomandi landi.

  • Notendanefnd samanstendur af öllum SWIFT notendum innan viðkomandi lands og hefur yfirumsjón með að samhæfa og skipuleggja rekstur SWIFT í landinu. Notendanefnd lútir stjórn formanns sem er megintengiliður milli notendahóps landsins og SWIFT.  

Formaður Landsnefndar er Delia Howser frá Kaupþingi og formaður Notendanefndar er Auður Bjarnadóttir frá Landsbanka.

Aðrir nefndarmenn eru: Kristín Ólafsdóttir frá MP banka, Salome Birgisdóttir frá Arion, Guðlaug Konráðsdóttir frá Íslandsbanka, Erla Árnadóttir frá Seðlabanka og Odd Oddsson frá Byr.

Umsókn um aðild að SWIFT fer fram í gegnum heimasíðuna www.swift.com



 



Tungumál


Útlit síðu:

Undirsíða 5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.