Algengar tegundir vátrygginga
Hér er fjallað í stuttu máli um nokkrar algengustu vátryggingartegundirnar:
a) Ábyrgðartrygging vegna bifreiða og annarra vélknúinna ökutækja. Vátrygging þessi er meðal þeirra algengustu á Íslandi, enda er skylt að kaupa hana vegna allra skráningarskyldra vélknúinna ökutækja samkvæmt 91. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
b) Húftrygging (kaskótrygging) bifreiða. Húftryggingar bifreiða eru algengar hér á landi. Húftrygging bifreiða bætir jafnan tjón sem verður á viðkomandi bifreið vegna áreksturs, áaksturs, eldsvoða, sprengingar, eldingar, hraps, veltu, grjóthruns, snjóflóðs, þjófnaðar o.fl. Yfirleitt nemur sjálfsáhætta (sjálfsábyrgð) vátryggðs nokkrum tugum þúsunda króna, svo að vátryggður fær ekki greiddar bætur úr tryggingunni vegna tjóna, sem eru innan þeirrar fjárhæðar.
c) Almennar slysatryggingar. Slysatrygging er vátrygging, þar sem vátryggingafélagið ábyrgist að greiða tiltekna fjárhæð í einu lagi eða yfir tiltekið tímabil, ef tiltekinn einstaklingur deyr (dánarbætur), verður óvinnufær (dagpeningar), hlýtur varanlega, læknisfræðilega örorku (bætur vegna varanlegrar örorku) eða verður að öðru leyti fyrir líkamstjóni (ýmiss útlagður kostnaður) af völdum slyss.
d) Slysatrygging ökumanns. Slysatrygging ökumanns er skyldutrygging á sama hátt og ábyrgðartrygging vegna vélknúinna ökutækja. Þannig er öllum eigendum eða umráðamönnum vélknúinna ökutækja skylt að kaupa þessa vátryggingu fyrir ökutækin, eins og fram kemur í 92. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Eins og nafnið bendir til er slysatrygging ökumanns sérstök slysatrygging fyrir ökumenn vélknúinna ökutækja, svo sem bifreiða, bifhjóla o.fl. Vátryggingin greiðir ökumönnum vélknúinna ökutækja bætur vegna þess líkamstjóns, sem þeir verða fyrir á meðan á notkun ökutækisins stendur. Ökumaður sem slasast við árekstur eða útafakstur ætti að öllu jöfnu rétt á greiðslu úr tryggingu þessari vegna líkamstjóns síns. Það getur hins vegar varðað bótalækkun eða bótamissi úr tryggingu þessari, líkt og í flestum öðrum gerðum trygginga, ef ökumaður veldur slysinu með stórkostlegu gáleysi eða ásetningi, eða ef slysið verður rakið til ölvunar hans. Slysatrygging ökumanns nær ekki til þess líkamstjóns, sem ökumenn verða fyrir þegar bifreiðin er ekki í notkun. Sem dæmi má nefna, að ökumaður sem er nýstiginn út úr bifreið sinni og rekur höndina harkalega í hliðarspegil hennar eða rennur á svelli, á að öllum líkindum ekki rétt á bótum úr slysatryggingu ökumanns.
e) Sjúkratryggingar. Sjúkratryggingar eru vátryggingar, sem ætlað er að greiða bætur ef sá, sem tryggður er, verður óvinnufær tímabundið eða hlýtur varanlega örorku af völdum sjúkdóms.
f) Brunatryggingar fasteigna. Húseigendum á Íslandi er skylt að brunatryggja allar húseignir samkvæmt lögum nr. 48/1994 um brunatryggingar. Vátrygging þessi greiðir eiganda fasteignar bætur vegna tjóns, sem verður á fasteign hans við eldsvoða. Þá taka tryggingar þessar jafnan líka til tjóns af völdum eldingar, sótfalls, loftfara og fallandi hluta úr þeim og slökkvi- og björgunaraðgerða.
g) Fasteignatryggingar / húseigendatryggingar. Algengt er að húseigendur kaupi fasteignatryggingar / húseigendatryggingar til viðbótar við hina lögboðnu brunatryggingu húseigna. Um er að ræða samsetta vátryggingu sem bætir tjón sem verður á fasteigninni sjálfri, gólfefnum, hurðum og innréttingum, t.d. af völdum vatns, óveðurs og innbrota. Í vátryggingunni er einnig innifalin ábyrgðartrygging húseiganda.
h) Fjölskyldutryggingar / heimilistryggingar. Mjög algengt er að fjölskyldur og einstaklingar kaupi svokallaðar fjölskyldutryggingar eða heimilistryggingar. Hér er í raun um að ræða tvö nöfn á sömu vátryggingunni. Vátryggingar þessar eru í raun hópur ýmissa vátrygginga, sem henta vel fjölskyldum og einstaklingum. Meðal þeirra vátrygginga, sem jafnan felast í fjölskyldutryggingu, eru innbústrygging, ábyrgðartrygging, frítímaslysatrygging, greiðslukortatrygging, farangurstrygging og málskostnaðartrygging. Innbústrygging bætir tjón, sem verður á innbúi vátryggðs, þ.e. húsgögnum, málverkum, heimilistækjum og öðru hefðbundnu lausafé auk peninga, verðbréfa, frímerkjasafna o.fl., við bruna, umferðaróhapp, þjófnað, rán, skemmdarverk, útstreymi vatns og annarra vökva, óveðurs o.fl.
i) Líftryggingar. Með hugtakinu líftrygging er í daglegu tali alla jafna átt við vátryggingu, sem greiðir bætur við andlát manns. Tegundir líftrygginga eru hins vegar mun fleiri, enda nær hugtakið líftrygging einnig til svokallaðra lífeyristrygginga eða söfnunarlíftrygginga, þ.e. vátrygginga þar sem reglubundnar greiðslur eru inntar af hendi úr tryggingunni í tiltekinn tíma, yfirleitt á meðan viðkomandi einstaklingur er enn í lifanda lífi. Slíkar tryggingar hafa rutt sér til rúms hér á landi á síðustu árum.

