Verðbréfastarfsemi
Verðbréfaviðskipti
Í 1. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, kemur fram að með verðbréfaviðskiptum sé átt við
-
Móttöku og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga.
-
Sölutryggingu í tengslum við útgáfu fjármálagerninga og/eða útboð fjármálagerninga.
Einnig er með verðbréfaviðskiptum átt við eftirfarandi viðskipti eða starfsemi ef hún er í nánum tengslum við starfsemi eða viðskipti sem talin eru upp að framan:
-
Vörslu og umsýslu fjármálagerninga fyrir reikning viðskiptavina, þ.m.t. öryggisvörslu fjár og tengda þjónustu, svo sem reiðufjár- og tryggingastjórnun.
-
Veitingu lánsheimilda, ábyrgða eða lána til fjárfestis þannig að hann geti átt viðskipti með fjármálagerninga ef fjármálafyrirtæki sem veitir lánsheimildina eða lánið kemur að viðskiptunum.
-
Ráðgjöf til fyrirtækja um uppbyggingu eigin fjár, stefnumótun og skyld mál og ráðgjöf og þjónustu varðandi samruna fyrirtækja og kaup á þeim.
-
Gjaldeyrisþjónustu ef umrædd viðskipti eru liður í fjárfestingarþjónustu.
-
Fjárfestingarrannsóknir og fjármálagreiningar eða annars konar almennar ráðleggingar er tengjast viðskiptum með fjármálagerninga.
Verðbréfafyrirtæki eru ekki skilgreind með beinum hætti í íslenskum lögum. Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 eru viðskipti og þjónusta með fjármálagerninga samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti leyfisskyld starfsemi. Í slíkri starfssemi er falin móttaka og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavinum, eignastýring, sbr. lög um verðbréfaviðskipti, sölutrygging í tengslum við útgáfu eins eða fleiri fjármálagerninga eða markaðssetning slíkrar útgáfu og umsjón með útboði verðbréfa.
Innan vébanda SFF eru þrjú verðbréfafyrirtæki, Íslensk verðbréf, Capacent Glacier og Auður Capital hf.
Ýmislegt efni um verðbréfastarfsemi
Innlendir tenglar:
Lög og reglur (verðbréfaviðskipti)
Samþætting verðbréfamarkaða í Evrópu (grein eftir Hallgrím Ásgeirsson lögfr.)
Erlendir tenglar:
Upplýsingasíða um innri markað ESB
Upplýsingasíða um innri fjármagnsmarkað ESB
Financial Services: Action Plan (1999)
Financial Services: Building a framework for action (1998)
Lamfalussy report (2001)
White Paper on Financial Services Policy 2005-2010 (2005)
Green Paper on Financial Services Policy (2005-2010) (2005)

