Alþjóðasamstarf
SFF taka þátt í ýmsu alþjóðahagsmunasamstarfi fyrir hönd aðildarfyrirtækja sinna. Stærstur hluti þess felst í aðild að European Banking Federation (EBF) og The European Insurance and Reinsurance Association (CEA). Þetta eru regnhlífarsamtök fjármála- og tryggingageirans í Evrópu og hafa innan sinna raða banka og tryggingafélög álfunnar. Megintilgangur beggja þessara samtaka er að koma sjónarmiðum banka og tryggingafélaga á framfæri gagnvart stofnunum Evrópusambandsins. Jafnframt eru þar rædd ýmis sameiginleg hagsmunamál þessara atvinnugreina á Evrópumarkaði og gagnvart öðrum löndum. SFF eiga einnig í gegnum EBF aðild að International Banking Federation (IBFed), sem hafa það að markmiði að stuðla að auknu samæmi í regluverki fjármálamarkaða milli heimsálfa.
Formaður SFF á sæti í stjórn EBF og framkvæmdastjóri í framkvæmdastjórn bæði EBF og CEA. Á vegum bæði EBF og CEA eru starfandi sérfræðinefndir fyrir einstök svið banka- og tryggingamarkaðar og oftar en ekki undirnefndir undir hverri sérfræðinefnd. SFF eiga fasta fulltrúa í nokkrum sérfræðinefndum og fylgjast með öðrum sem samtökin telja að geti skipt máli.
SFF eru í góðum tengslum við systursamtök sín víða um Evrópu og eiga gegnum það tengslanet greiðan aðgang að upplýsingum um regluumhverfi og framkvæmd á banka- og tryggingamarkaði í nágrannaríkjunum.
Auk framangreinds taka SFF þátt í norrænu samstarfi verðbréfafyrirtækja og verðbréfasjóða, þar sem mikill tími síðustu misseri hefur farið í mótun og innleiðingu MiFID. Norrænu verðbréfasamtökin halda úti sameiginlegri vefsíðu um regluumhverfi norræns verðbréfamarkaðar. SFF og önnur norræn verðbréfasamtök hafa einnig átt mikið samstarf við London Investment Banking Association (LIBA). Sameiginlega hafa þessi samtök á undaförnum árum sent fjölda álitsbréfa til framkvæmdastjórnar ESB, Samtaka evrópskra fjármálaeftirlita (CESR) og annarra alþjóðlegra aðila út af reglum í mótun á fjármálasviði.
Á vef Evrópusambandsins má m.a. finna ýmsar upplýsingar um innri markaðinn, en frjálst fjármagnsflæði á milli aðildarríkjanna er einn af hornsteinum hans. Sjá nánar um það hér.

