Samþykktir

1. gr.
Heiti

Félagið heitir Samtök fjármálafyrirtækja, skammstafað SFF. Heimili þess, skrifstofa og varnarþing er í Reykjavík.
Heiti samtakanna á ensku er „Icelandic Financial Services Association“.

2. gr.
Tilgangur

Tilgangur samtakanna er:
1. Að vera málsvari fjármálafyrirtækja í hagsmunamálum þeirra.
2. Að stuðla að samkeppnishæfum starfsskilyrðum íslenskra fjármálafyrirtækja.
3. Að taka þátt í erlendu hagsmunasamstarfi fjármálafyrirtækja.
4. Að auka skilning á mikilvægi fjármálafyrirtækja fyrir íslenskan efnahag.

3. gr.
Aðild

Almenn aðild

Aðild að samtökunum geta átt fyrirtæki, sem hlotið hafa starfsleyfi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki eða lögum um vátryggingastarfsemi.

Með fjármálafyrirtæki í samþykktum þessum er átt við starfsleyfisskyld fyrirtæki skv. 1. mgr., sem falla undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins.

Útibú erlendra fjármálafyrirtækja hér á landi, sem hafa hlotið starfsleyfi í heimaríki sínu á þeim sviðum, sem 1. og 2. mgr. tekur til, geta einnig átt aðild að samtökunum.

Aukaaðild

Aukaaðild að samtökunum geta átt erlend fjármálafyrirtæki með gilt starfsleyfi sem veita þjónustu hér á landi án starfsstöðvar.

Afgreiðsla umsóknar

Fyrirtæki sem óskar eftir aðild að samtökunum skal senda skriflega umsókn þess efnis til stjórnar. Með umsókn skulu fylgja samþykktir fyrirtækisins, síðasti ársreikningur og upplýsingar um starfssvið þess.

Stjórn samtakanna skal á næsta stjórnarfundi eftir móttöku aðildarumsóknar taka afstöðu til hennar og tilkynna umsækjanda ákvörðun sína skriflega. Sé umsókn synjað getur umsækjandi innan eins mánaðar farið fram á að ákvörðun stjórnarinnar verði borin undir félagsfund. Slíkan fund skal halda innan tveggja vikna frá því að ósk umsækjanda þar að lútandi barst stjórn.

4. gr.
Samtök atvinnulífsins

Samtök fjármálafyrirtækja eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins (SA). Aðildarfyrirtæki Samtaka fjármálafyrirtækja eiga jafnframt aðild að SA. Fyrirtæki með aukaaðild eiga ekki aðild að SA.

Innganga í Samtök fjármálafyrirtækja felur jafnframt í sér beina aðild að Samtökum atvinnulífsins með þeim réttindum og skyldum sem kveðið er á um í samþykktum þeirra.

Samtök atvinnulífsins annast gerð kjarasamninga fyrir hönd aðildarfyrirtækja SFF, annarra en þeirra sem takmarkað hafa aðild sína við þjónustudeild Samtaka atvinnulífsins.

5. gr.
Úrsögn og brottvikning

Heimilt er að segja sig úr SFF frá næstu áramótum að telja. Úrsögn skal vera skrifleg og sendast stjórn samtakanna fyrir júnílok. Þó má hvorki segja sig úr samtökunum né fara úr þeim á meðan vinnudeila sem snertir hlutaðeigandi fyrirtæki eða aðildarfélag stendur yfir.

Brjóti aðildarfyrirtæki gegn ákvæðum samþykkta þessara eða löglega teknum ákvörðunum félagsins getur stjórn SFF vikið því úr samtökunum. Fyrirtækið getur farið fram á að ákvörðun stjórnar verði borin undir félagsfund. Slíkan fund skal halda innan tveggja vikna frá því að ósk þar að lútandi barst stjórn.

Úrsögn eða brottvikning leysir ekki fyrirtæki undan greiðslu félagsgjalda eða annarra skuldbindinga sem á því kunna að hvíla.

6. gr.
Aðalfundur

Aðalfundur samtakanna fer með æðsta vald í málefnum þeirra. Hann skal haldinn fyrir lok apríl ár hvert. Aðalfundur skal boðaður af stjórn með bréfi til aðildarfyrirtækja eða öðrum sannanlegum hætti með a.m.k. sjö daga fyrirvara.

Löglega boðaður aðalfundur er lögmætur óháð fundarsókn.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:

1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
2. Reikningar bornir upp til samþykktar.
3. Kosning stjórnar og varamanna.
4. Kjör endurskoðanda
5. Breytingar á samþykktum.
6. Önnur mál.

Rétt til setu á aðalfundi og öðrum félagsfundum með málfrelsi og tillögurétt eiga stjórnendur aðildarfyrirtækja og starfsmenn samtakanna. Stjórn er heimilt að bjóða öðrum fundarsetu.

7. gr.
Afgreiðsla mála

Á aðalfundum og öðrum félagsfundum ræður einfaldur meirihluti atkvæða nema annað sé tekið fram í samþykktum þessum. Komi fram ósk um skriflega atkvæðagreiðslu skal orðið við því.

Stjórn samtakanna skal hlutast til um að útbúin verði atkvæðaskrá sem gildi tekur 10. mars ár hvert og grundvallast á útreiknuðum árgjöldum, sbr. 13. gr. Svara eitt þúsund krónur í greiddum árgjöldum til eins atkvæðis.

Atkvæðaskrá skal liggja frammi á félagsfundum og aðalfundum.

 8. gr.
Félagsfundir

Félagsfundir skulu haldnir svo oft sem stjórn samtakanna telur ástæðu til. Hún skal þó ætíð boða til félagsfundar innan tveggja vikna komi fram ósk um það frá einum stjórnarmanna, fleiri en einu aðildarfyrirtæki eða ef samþykktir kveða á um. Boða skal til félagsfundar með að lágmarki þriggja daga fyrirvara. Um boðun fer að öðru leyti með sama hætti og um boðun aðalfundar.

 9. gr.
Stjórn

Stjórn samtakanna skal skipuð níu mönnum sem kjörnir skulu á aðalfundi samtakanna til tveggja ára í senn. Formaður skal kjörinn sérstaklega.  Stjórn kýs varaformann á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund. Stjórnarstörf eru ólaunuð.

Stjórn samtakanna skal minnst átta vikum fyrir aðalfund kjósa þrjá menn til setu í kjörnefnd sem sér um framkvæmd kosninga. Kjörnefnd skal með áskorun til félagsmanna leita eftir tillögum um formann og stjórnarmenn og rennur framboðsfrestur út þremur vikum fyrir upphaf aðalfundar. Kjörgengur er æðsti stjórnandi hvers aðildarfélags. Kjörnefnd ber að leggja fram tillögur eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og senda út kjörgögn nema sjálfkjörið sé.

Ef stjórnarmaður lætur af störfum hjá aðildarfélagi á kjörtímabili stjórnar getur stjórn ákveðið að setja upp rafrænan félagsfund til að kjósa nýjan stjórnarmann í hans stað.

 

 10. gr.
Verkefni stjórnar

Stjórn samtakanna fer með æðsta vald í málefnum þeirra milli aðalfunda. Hún undirbýr aðalfund og aðra félagsfundi. Formaður boðar til stjórnarfunda. Stjórnarfundir eru lögmætir ef mættir eru meirihluti stjórnarmanna. Fjarþátttaka einstakra stjórnarmanna á stjórnarfundum er heimil með samþykki stjórnar.

Við afgreiðslu mála á stjórnarfundum fer hver stjórnarmaður með eitt atkvæði og ræður einfaldur meirihluti atkvæða. Ef atkvæði falla að jöfnu ræður atkvæði formanns.

Ákvarðanir um þátttöku í erlendu hagsmunasamstarfi skulu teknar af stjórn samkvæmt tillögum þeirra aðildarfyrirtækja sem eiga hagsmuna að gæta af samstarfinu.

Stjórnin tilnefnir fulltrúa í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins.

Framkvæmdastjóri heldur fundargerð um stjórnarfundi, sem staðfest skal af stjórn.

 

 11.gr.
Framkvæmdastjóri

Stjórnin ræður framkvæmdastjóra til að sinna verkefnum samtakanna. Framkvæmdastjóri hefur rétt til setu á öllum fundum samtakanna með málfrelsi og tillögurétt. Stjórn ákvarðar starfskjör framkvæmdastjóra.

Framkvæmdastjóri ræður starfsfólk á skrifstofu samtakanna. Undirskrift framkvæmdastjóra bindur samtökin í daglegum rekstri.

 12. gr.
Ársreikningur og endurskoðun

Reikningsár samtakanna er almanaksárið. Stjórn skal láta semja ársreikning fyrir hvert reikningsár.

13. gr.
Fjárhagsáætlun og árgjöld

Aðildarfyrirtæki samtakanna skulu fyrir 10. mars ár hvert senda skrifstofu samtakanna upplýsingar um eigið fé og heildarlaunagreiðslur næstliðins reikningsárs.

Stjórn samtakanna afgreiðir fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi reikningsár.

Kostnaði af starfsemi samtakanna samkvæmt fjárhagsáætlun hvers árs skal skipt milli aðildarfyrirtækja sem eiga almenna aðild að samtökunum í hlutfalli af heildarlaunagreiðslum og eigin fé næstliðins árs, þannig að launagreiðslur nemi 7/10 og eigið fé 3/10. Þó greiðir ekkert aðildarfyrirtæki meira en sem nemur 25% af árlegum kostnaði.

Stjórn ákvarðar lágmarks árgjald sem og fast gjald sem aðildarfyrirtæki með aukaaðild greiða.

Stjórn ákveður gjalddaga árgjalda.

Skrifstofu samtakanna er heimilt að afla upplýsinga sem nauðsynlegar eru vegna álagningar árgjalda.

Skrifstofu samtakanna er heimilt að krefja aðildarfyrirtæki um greiðslu kostnaðar vegna sérverkefna sem unnin eru að þeirra beiðni.

 14. gr.
Breytingar á samþykktum

Tillögur um breytingar á samþykktum þessum skulu sendar stjórn sem leggur þær fyrir aðalfund eða almennan félagsfund. Þær skulu hafa borist eigi síðar en viku fyrir fund og skal þeirra getið í fundarboði. Til að breyta samþykktum þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða. Hið sama gildir um tillögu um slit á samtökunum. Ákveði aðalfundur eða almennur félagsfundur að slíta samtökunum skal fundurinn jafnframt ráðstafa eignum þeirra og skuldum.



 



Tungumál


Útlit síðu:

Undiríða 7
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.