Hver er staðan á rafrænum þinglýsingum?

Hver er staðan á rafrænum þinglýsingum?

Þriðjudaginn 19.janúar kl. 09.00 - 10.30

Taktu daginn frá!

Samtök fjármálafyrirtækja, Ísland.is, Dómsmálaráðuneytið, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Þjóðskrá Íslands, Sýslumenn og Fjártækniklasinn standa fyrir rafrænum fundi um rafrænar þinglýsingar á þriðjudaginn þann 19. janúar kl. 09:00 – 10:30.Rafrænar þinglýsingar eru lykilþáttur í að Ísland verði fremst í flokki í pappírslausum viðskiptum og rafrænni stjórnsýslu. Umræðan um rafrænar þinglýsingar hefur lengi verið til staðar enda mikill ávinningur af þeim fyrir samfélagið.Á fundinum verður farið yfir stöðuna á verkefninu, hvernig það blasir við fjármálastofnunum og hvaða tækifæri skapast í kjölfar rafrænna þinglýsinga. Einnig verða ræddar hugmyndir um breytingar á löggjöf sem eru nauðsynlegar fyrir rafræn veðskuldabréf.

Dagskrá

OpnunarávarpÁslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherraRafrænar þinglýsingar - staða verkefnisins og þróunAndri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns ÍslandsÁhrif rafrænna þinglýsinga á fjármálamarkaðinn og næstu skrefIða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion bankaBrautin rudd : Álitaefni í réttarfari og fjármunarétti vegna rafrænna þinglýsinga á veðskuldabréfumFriðrik Árni Friðriksson Hirst, framkvæmdastjóri Lagastofnunar Háskóla Íslands og ráðgjafi stýrihóps um rafrænar þinglýsingarFundarstjóri: Jóna Björk Guðnadóttir, yfirlögfræðingur SFF

Fundinum verður streymt en ef þú skráir þig sendum við þér tengil og áminningu fyrir fundinn.Smelltu hér eða á hnappinn hér að ofan til að skrá þig