Loftslagsvegvísir atvinnulífsins

Loftslagsvegvísir atvinnulífsins var kynntur í gær, miðvikudag 23.júní 2021. Á fundinum var Loftslagsvegvísir atvinnulífsins formlega kynntur, en hann gefur yfirsýn yfir núverandi stöðu, auðveldar atvinnugreinunum að setja sínar loftslagsaðgerðir í stærra samhengi og hvetur atvinnulífið til frekari aðgerða. Fjölmargir aðilar standa að útgáfunni: Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF), Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), Samtök iðnaðarins (SI), Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) og Bændasamtök Íslands auk Grænvangs.Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra ávarpaði fundinn.Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Grænvangs og framkvæmdastjóri SI, kynnti vegvísinn ásamt Eggerti Benedikt Guðmundssyni, forstöðumanni Grænvangs.Sjá LoftslagsvegvísinnHér má horfa á upptöku af viðburðinum: