Næstum allt sem þú vilt vita um fjárfestingar

Viðskiptaráð, HR, Nasdaq og Samtök fjármálafyrirtækja standa fyrir opnum fræðslufundi um fjárfestingar. Í tilefni af World Investor Week standa HR, Nasdaq, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð fyrir opnum fræðslufundi um fjárfestingar. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 7. október kl. 16 í sal V101 í Háskólanum í Reykjavík og í beinu Facebook-streymi.Ungt fólk sem hefur áhuga á að stíga sín fyrstu skref í heimi fjárfestinga er sérstaklega boðið velkomið.Á fundinum munu eftirtalin halda stutt erindi:

  • Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja
  • Magnús Harðarson, forstjóri NASDAQ Iceland
  • Rósa Kristinsdóttir, meðstofnandi FORTUNA Invest
  • Már Wolfgang Mixa, lektor við Háskólann í Reykjavík
  • Arnaldur Þór Guðmundsson, formaður Ungra fjárfesta

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.Verið öll hjartanlega velkomin!