Ráðstefna SFF og SVÞ um notkun reiðufjár 1. júní

Notkun reiðufjár í verslun og þjónustu er yfirskrift ráðstefnu sem Samtök fjármálafyrirtækja og Samtök verslunar og þjónustu standa sameiginlega að fimmtudaginn 1. júní næstkomandi á Grand hótel Reykjavík. Fundurinn mun standa yfir frá klukkan 9:00 til 11:00.Á fundinum mun Bengt Nilervall hjá Svensk Handel halda erindi um reynslu Svía á þessu sviði. Auk þess mun Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, fara yfir hvernig málið horfi við Seðlabankanum. Í kjölfarið verða pallborðsumræður þar sem meðal annars verður rýnt í notkun reiðufjár út frá sjónarhóli fjármálastofnana, verslunar og lögregluyfirvalda.Opnun fundar:

  • Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka verslunar og þjónustu.

Fyrirlesarar:

  • Bengt Nilervall,fyrirtækja- og stefnusérfræðingur í greiðslumálum hjá Svensk Handel.
  • Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.

Pallborðsumræður:

  • Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi.
  • Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
  • Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff.
  • Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri.

Fundarstjóri: Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.Boðið verður upp á léttar veitingar.Hægt er að skrá sig á fundinn hér.