Skráning hafin á Menntadag atvinnulífsins

Menntadagur atvinnulífsins fer fram 4. febrúar 2021 en þetta er í áttunda sinn sem dagurinn er haldinn. Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.Á menntadaginn fer fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fram með rafrænum hætti.Meðal innslaga í þættinum eru:

  • Greiningar- og nýsköpunarhæfniFinnur Oddsson, forstjóri Haga
  • Virkni í námi og námsaðgerðumIngvi Hrannar, kennari og frumkvöðull
  • Lausnamiðuð nálgunBirna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
  • Gagnrýnin hugsun og greiningKristín Friðgeirsdótir, alþjóðlegur stjórnendaráðgjafi
  • Sköpun, frumleiki og frumkvæði Dóra Jóhannsdóttir, leikkona
  • Forysta og félagsleg áhrifTryggvi Þorgeirsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Sidekick Health
  • Tækninotkun, eftirlit og stjórnAnna Kristín Pálsdóttir, Marel – framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar
  • Tæknihönnun og forritunÆgir Már Þórisson Advania, forstjóri Advania
  • Seigla, streituþol og sveigjanleikiVíðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
  • Rökhugsun, lausn vandamála og hugmyndafræðiStefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyrir Vöxtur hjá Eyri Venture Management

Menntatorg atvinnulífsins verður á sínum stað undir stjórn Söru Daggar Svanhildardóttur, verkefnastjóra mennta- og fræðslumála SVÞ og líflegar umræður um menntamál Íslendinga í víðu samhengi setja svip sinn á þáttinn.Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA stýrir þætti.

Það verður forvitnilegt að sjá hvaða fyrirtæki bætast í hóp þeirra fyrirtækja sem hafa hlotið menntaverðlaun atvinnulífsins til þessa. Orkuveita Reykjavíkur var menntafyrirtæki ársins 2020 og Samkaup menntasproti ársins 2020.

Smelltu hér til að skrá þig

Tengt efni:Glefsur úr Menntadegi atvinnulífsins 2020 í Sjónvarpi atvinnulífsins