Nýtt nafn SFF

Samtök fjármálafyrirtækja, heildarsamtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hér á landi, hafa fengið nýtt nafn og munu hér eftir bera heitið Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu.

Skammstöfun samtakanna verður áfram SFF og samtökin munu áfram bera heitið Finance Iceland á ensku. Nafnabreytingin var samþykkt einróma á félagsfundi SFF. Aðildarfélög SFF eru 25 en hjá þeim starfa um 3.300 starfsmenn. Samtökin urðu til í núverandi mynd árið 2006, en forverar samtakanna eiga sér mun lengri sögu. Sex sérfræðingar starfa á skrifstofu SFF.

„Okkur þykir nýja nafnið endurspegla betur þann fjölbreytta hóp aðildarfélaga sem er innan okkar raða, sem eru meðal annars sparisjóðir, verðbréfafyrirtæki, tryggingafélög, bankar, félög í lánastarfsemi, eignastýringu, greiðslumiðlun og bakvinnslu fyrir fjármálamarkaði. Með þessu náum við einnig betur utan um þá þjónustu sem aðildarfélög okkar veita landsmönnum á hverjum degi,“ segir Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu.

„Við töldum einnig fara vel á því að kynna nýtt nafn samtakanna þegar við höldum upp á 150 ára afmæli innlendrar löggjafar um fjármálaþjónustu hér á landi, en árið 1874 undirritaði Kristján IX. fyrstu tilskipunina um sparisjóðina í landinu, sama dag og hann staðfesti fyrstu stjórnarskrá Íslendinga. Á þessum tíma hafa fjármálastofnanir í landinu vaxið og dafnað með íslensku samfélagi og tekið ótrúlegum breytingum,” segir Heiðrún.

Samhliða þessari breytingu hafa samtökin endurnýjað vörumerki og heimasíðu samtakanna þar sem finna má ýmsan fróðleik og gagnlegar upplýsingar sem tengjast fjármálaþjónustu.