Erlent samstarf

Alþjóðlegt samstarf er grundvallar þáttur í starfsemi SFF. Íslensk fjármálafyrirtæki starfa að miklu leyti í alþjóðlegu umhverfi auk þess sem starfsumhverfi þeirra byggir að mestu leyti á evrópsku regluverki.

SFF eiga aðild að Evrópsku bankasamtökunum (EBF). Fulltrúar frá SFF sitja m.a. í stjórn og framkvæmdastjórn EBF auk laganefndar EBF.

SFF eiga jafnframt aðild að Evrópsku tryggingasamtökunum (Insurance Europe) og situr fulltrúi SFF m.a. í framkvæmdastjórn Insurance Europe.

Þá eiga SFF aðild að Nordic Future Innovation auk þess sem virkt samstarf er við systursamtök SFF á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.