Fréttabréf SFF: Hærri skattar, baráttan gegn tryggingasvikum og nýtt borðspil í grunnskóla‍

Í nýútkomnu fréttabréfi SFF kennir ýmissa grasa. Þar er að finna ítarlega umfjöllun um fund sem samtökin stóðu fyrir nú í september, þar sem fjallað var um fyrirætlanir stjórnvalda um að hækka sértækan skatt á fjármálafyrirtæki hér á landi, möguleg áhrif og sjónarmið tengd slíkri skattheimtu.

SFF hafa lagst gegn áformunum og ítrekað bent á að framkvæma þurfi heildarmat á áhrifum áður en skattur sem þessi er lagður á. Slíkt mat þurfi að taka til hagkerfisins í heild, ekki aðeins áhrifa á ríkissjóð.

Í fréttabréfinu er einnig er fjallað um vaxandi umfang tryggingasvika sem framin eru af hendi skipulagðra brotahópa, áherslur SFF þegar kemur að einföldun Evrópureglna og glænýtt borðspil um fjármálalæsi sem ungir frumkvöðlar hafa hannað og framleitt, og Fjármálavit gefur nú í grunnskóla landsins.

Þá er þar að finna yfirferð um þingmálaskrá vetrarins og þau mál sem varða aðildarfélög SFF sérstaklega, auk yfirferðar yfir umsagnir sem samtökin hafa sent frá sér að undanförnu.

Fréttabréfið má nálgast hér.