Kemur þú auga á svikin? - Netsvikapróf SFF

Í síbreytilegum heimi tækninnar eru aðferðir netsvikara í stöðugri framþróun og erfitt getur reynst að fylgjast með og verjast þeim. Hér má finna próf þar sem þú getur séð hvar þú stendur í baráttunni gegn netsvikum. Gangi þér vel! 

‍

‍

Hollráð gegn netsvikum

Hér að neðan má svo finna nokkur góð ráð í tengslum við netverslun og netöryggi almennt. Ekkert okkar vill lenda í svikum og hér að neðan eru nokkur góð ráð til að hafa í huga, svo lágmarka megi hættuna. Þar fyrir neðan má svo finna netsvikapróf, þar sem þú getur séð hvar þú stendur gagnvart óprúttnum netþrjótum.

• Stoppum og hugsum. Svikarar reyna oft að búa til tímapressu og segja manni frá tilboðum sem „eru alveg að renna út“. Ekki taka fjárhagslegar ákvarðanir í flýti. Það er betra að missa af afslættinum en að lenda í netsvikum.

• Ef tilboðið hljómar of gott til að vera satt, þá er það líklega ekki satt. Undarlega mikill afsláttur eða verð langt undir því sem er eðlilegt er rautt flagg.

• Það mun enginn að gera þig ríka/n í hvelli. Fjárfestingasvik hafa færst í aukana á síðustu árum. Auglýsingar eða loforð um skjótan gróða gegn því að fjárfesta í einhverju verkefni eru afar varasöm, svo ekki sé meira sagt.

• Er einhver sem þú hefur aldrei hitt að biðja þig um pening? Það er tilefni til þess að staldra við og spyrja sig hvort viðkomandi sé raunverulega sá sem hann segist vera.

• Ekki treysta hlekkjum í blindni. Fölsk SMS um pakka, sendingargjöld og tilboð eru algeng beita. Farðu frekar inn á heimasíðu eða app fyrirtækisins eða hringdu og kannaðu málið.

• Athugaðu hvar þú ert að versla. Svikasíður geta verið mjög líkar vefsíðum raunverulegra verslana. Skoðaðu hlekki vel og kannaðu málið áður en þú slærð inn kortaupplýsingar.

• Passaðu kortaupplýsingarnar. Sláðu kortaupplýsingar eingöngu inni á þekktum greiðslusíðum sem þú treystir. Gefðu aldrei upp PIN-númer, lykilorð eða öryggiskóða úr SMS.

• Hægt er að frysta eða loka kortum sem grunur er um að svikarar hafi komist yfir í appi eða á vefsíðu kortaútgefanda.

• Farðu beint á síðuna ef þú átt von á pakka. Svikarar senda reglulega SMS um afhendingu eða sendingargjald. Ef þú færð svoleiðis skilaboð skaltu fara sjálf/ur inn á síðu flutningafyrirtækisins og ekki smella á hlekkinn í skilaboðunum.

• Farðu sérlega varlega með rafrænu skilríkin. Ekki samþykkja innskráningarbeiðnir sem þú kannast ekki við. Ekki staðfesta beiðnir með rafrænum skilríkjum sem þú áttir ekki frumkvæði að og lestu skilaboð vel.

• Í vafa? Staðfestu sjálf/ur. Ef þú ert í vafa, hafðu samband við fyrirtækið eða stofnunina sem skilaboð eru sögð vera frá, í gegnum upplýsingar á opinberri vefsíðu viðkomandi aðila. Þú tapar aldrei á því að kanna málið.

• Hafðu strax samband við bankann þinn og því næst lögreglu ef þú telur þig hafa orðið fyrir svikum.

‍

Hér að neðan má sjá vefsíður með gagnlegum upplýsingum:

Tilkynningargátt lögreglu - hér er hægt að tilkynna netsvik til lögreglu.

Tilkynningar til CERT-IS - Hér má tilkynna öryggisatvik eða áhættu til netöryggissveitarinnar CERT-IS.

Taktu tvær - fræðsluvefur SA, SFF og Neytendasamtakanna um netöryggi.