Hreyfanleiki mælist mikill á íslenskum fjármálamarkaði

Hreyfanleiki íslenskra neytenda á fjármálamarkaði er meiri en í öllum ríkjum Evrópusambandsins. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem Gallup framkvæmdi fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) fyrst árið 2024 og svo aftur 2026. Hreyfanleiki á Íslandi er borinn saman við tölur frá ESB frá 2024, og endurtekin könnun nýverið. Fjallað var um málið í Morgunblaðinu á dögunum.

Í samanburði frá árinu 2024 mátti sjá að hlutfall þeirra sem höfðu fært fjármálaviðskipti sín milli þjónustuaðila á síðustu fimm árum var hærra en í nokkru ríki ESB. Hlutfallið var 48% á Íslandi, samanborið við 38% í Svíþjóð og 32% í Danmörku. Hreyfanleikinn var einnig meiri en í öllum ríkjum ESB þegar kom að greiðslukortum, sparnaðarreikningum og húsnæðislánum. Ný könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir SFF sýnir að hlutfallið á Íslandi helst hátt eða 49% en ekki liggur fyrir ný samanburðarkönnun fyrir ESB ríkin síðan 2024.

Almenningur vel upplýstur

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, ræddi málið við Morgunblaðið.

„Það er mjög auðvelt að stofna nýja reikninga á Íslandi og flestir gera það bara í símanum eða í tölvunni hjá sér á meðan það er oft miklu meira mál í Evrópulöndunum. Í einhverjum ríkjum kostar að stofna reikninga og svo erum við ásamt fleiri löndum í álfunni mjög framarlega í tækni- og sjálfvirknivæðingu,“ sagði Heiðrún.

Margir sem búið hafi erlendis kannist við að erfitt geti verið að stofna reikninga þar.

„Hérlendis er það jákvætt að neytendur séu upplýstir og fylgist vel með hvað er í boði og séu þ.a.l. óhræddir við að hreyfa sig á milli banka og vera í viðskiptum jafnvel við nokkra banka á sama tíma,“ segir Heiðrún við Morgunblaðið.

Meirihlutinn með viðskiptin á fleiri en einum stað

Rúmlega helmingur þeirra sem eru með innlánsreikning á reikning hjá fleiri en einum banka eða sparisjóði, eða 52% á meðan 48% aðspurðra eru aðeins með slíkan reikning hjá einu fyrirtæki. 35% eru með reikninga á tveimur stöðum og 12% á þremur.

„Það er jákvætt að fólk fylgist vel með,“ sagði Heiðrún. Á sama tíma sögðu  66% aðspurðra sem ekki höfðu skipt um viðskiptabanka ánægju með sinn viðskiptabanka helstu ástæðuna fyrir því að þeir höfðu ekki skipt, 15%, flókið, og rúm 4% nefndu aðrar ástæður.

‍Þegar sambærileg könnun var gerð árið 2024 kom í ljós að hlutfall þeirra sem höfðu fært viðskipti milli viðskiptaaðila var 48% á Íslandi samanborið við 38% í Svíþjóð og 32% í Danmörku. Þá var hreyfanleikinn meiri á Íslandi en í öllum ríkjum ESB í heild og sérstaklega þegar kom að greiðslukortum, sparnaðarreikningum og húsnæðislánum. Könnunin núna sýnir áfram mikinn hreyfanleika og alls höfðu 48,6% svarenda fært viðskipti sín á milli þjónustuaðila að einhverju leyti á síðustu fimm árum.

Íslendingar framarlega á merinni í tæknimálum

Þá sýnir könnunin að flestir nota símann til daglegra bankaviðskipta, eða 67,2%, 29,5% nota tölvu og aðeins 1,8% nefna heimsókn í útibú sem helstu leiðina.

„Það eru mjög fáir sem fara í dag í bankaútibú til að sinna daglegum erindum, eða einungis 8% sem fara mánaðarlega eða oftar í bankaútibú,“ sagði Heiðrún.

Þessi þróun hafi fylgt stafrænni þróun og sjálfvirknivæðingu, og þannig hafi fjármálafyrirtækjum tekist að lækka rekstrarkostnað sinn og hagræða í rekstrinum. Til samanburðar sýnir könnun á vegum Evrópusambandsins að  um 30% íbúa í ESB höfðu ekki notað netbanka síðustu þrjá mánuði árið 2025.

Heiðrún nefndi þó að Norðurlöndin skeri sig úr með meiri netbankanotkun.

„En við erum sérstaklega opin fyrir tækninni hérna á Íslandi.“