Sumarlokun á skrifstofu SFF

Skrifstofa SFF í Borgartúni 35 verður lokuð í tvær vikur frá mánudeginum 20. júlí og fram til þriðjudagsins 4. ágúst vegna sumarleyfa.

Á liðnum vetri hafa samtökin unnið að fjölbreyttum hagsmunamálum félagsmanna og staðið fyrir viðburðum og verkefnum sem hafa eflt starfsemi samtakanna og þjónustu við félagsmenn.

Vel sóttar ráðstefnur

Í september héldu SFF, ásamt Samtökum iðnaðarins, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og HMS, ráðstefnu um brunavarnir og öryggi til framtíðar, sem varð meðal annars tilefni boðaðrar endurskoðunar laga um brunatryggingar. Vinna við þá endurskoðun er þegar hafin.

Í samstarfi við Nasdaq Iceland stóðu samtökin einnig fyrir tveimur ráðstefnum um eflingu íslensks hlutabréfamarkaðar og mögulega upptöku fjárfestingarreikninga fyrir einstaklinga.

Í nóvember hrundu samtökin af stað herferð gegn netsvikum með fræðslu, fjölmiðlaumfjöllun og útgáfu netsvikaprófs. Á SFF-deginum í apríl var sjónum beint að framtíð fjármálaþjónustu, fjártækni og gervigreindar.

Skattamál í brennidepli

SFF hafa jafnframt lagt ríka áherslu á greiningarvinnu í tengslum við boðaða skattheimtu á fyrirtæki í fjármálageiranum og unnið að því að koma sjónarmiðum sínum og upplýsingum á framfæri við stjórnvöld og almenning. Það hafa samtökin gert með miðlun efnis í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum, viðburðahaldi en einnig beinum samtölum við fjármála- og efnahagsráðherra og aðra sem koma að ákvörðunum um skattamál með beinum hætti.

Samtökin stóðu fyrir ráðstefnu 9. júní sl. í Veröld - húsi Vigdísar, þar sem Dr. Gunnar Haraldsson, stofnandi og eigandi Intellecon, fjallaði um möguleg áhrif aukinna skattheimtu. Í kjölfarið hafa fjölmiðlar birt á þriðja tug frétta og viðtala um málið, auk þess sem fjöldi fólks hefur stungið niður penna í skoðanagreinum miðlanna.

Á liðnum vetri skiluðu samtökin um 30 umsögnum um mál sem varða aðildarfélög SFF og unnið áfram ötullega að eflingu fjármálalæsis í gegnum Fjármálavit.

Gleðilegt sumar!  

Þrátt fyrir stutta sumarlokun má hér nálgast upplýsingar um hvernig hægt er að ná í starfsfólk SFF ef erindið þolir ekki bið.

SFF þakkar félagsmönnum, samstarfsaðilum og öðrum velunnurum fyrir gott samstarf á liðnu starfsári og óskar öllum gleðilegs sumars.