Heilbrigð tortryggni getur sparað háar fjárhæðir

„Það er þannig á þessum söludögum að svikararnir fara líka oft á stjá og reyna ýmsar leiðir til þess að plata fólk í netviðskiptum.“

Þetta sagði Ingvar Haraldsson, greininga- og samskiptastjóri SFF, í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni á dögunum. Ingvar hafði áður rætt um sama málefni í Síðdegisútvarpinu á Rás 2.

Tilefni viðtalsins var dagur einhleypra, einn þriggja stórra netsöludaga sem hafa fest sig í sessi í íslenskri verslunarmenningu, auk svarts föstudags og stafræns mánudags. Á þessum dögum bjóða verslanir og fyrirtæki oft góðan afslátt þegar verslað er á netinu. Ingvar bendir á að slíkum tilboðum fylgi þó aukin hætta á svikum, og því mikilvægt að hafa varann á þar sem netþrjótar setji jafnvel upp falskar sölusíður og netverslanir til þess að hafa fjármuni af fólki.

„Þá er oft ágætt að hafa í huga: Er tilboðið of gott til að vera satt? Þá er það sennilega ekki satt,“ sagði Ingvar í viðtalinu. Hann benti einnig á að netsvikarar reyndu oft að búa til tímapressu gagnvart fólki.

Forðast að smella á hlekki

„Það er ágæt regla, bæði á samfélagsmiðlum og ef þú færð eitthvað sent, að smella ekki á hlekki, heldur fara sjálfur á vefsíðu viðkomandi fyrirtækis og finna tilboðið þar. Það er ágætt ráð til að hafa í huga,“ sagði Ingvar. Það sama gildi þegar um sé að ræða skilaboð sem virðist vera frá Póstinum eða öðru sendingarfyrirtæki, sem fram kemur að viðtakandinn eigi von á pakka og þurfi því að leggja fram kortaupplýsingar. Ekki eigi að smella á hlekki heldur fara sjálfur á síðu viðkomandi fyrirtækis og skrá sig inn á mitt svæði eða hringja og kanna málið. Sama gildi um skilaboð sem send eru í nafni Skattsins eða banka – ekki smella á hlekki heldur fara sjálfur á heimasíðu viðkomandi fyrirtækis eða hringja.

Þá séu dæmi um að settar hafi verið upp falskar netverslanir á íslensku með aðstoð gervigreindar.

Flýta sér hægt og viðvörunarmerkin

Ingvar hvetur fólk til að flýta sér hægt og kanna hvort netverslunarsíður og ferlið sé eins og það eigi að vera.

„Til dæmis hlekkirnir. Og svo, er eitthvað skrýtið í ferlinu? Er þetta óeðlilega góður afsláttur? Er sennilegt að það séu bara 10 sekúndur eftir af tilboðinu og tvö eintök eftir? Það er verið að reyna að búa til tímapressu á þig. Svo er það, þegar þú ert að ganga frá endanlegri greiðslu með rafrænum skilríkjum, að skoða hvort allar upplýsingar stemma. Er þetta söluaðilinn sem ég held að þetta sé? Er þetta rétt upphæð? Er þetta réttur gjaldmiðill? Fólk hefur lent í því að halda að það sé að borga í krónum og svo kemur rukkun í evrum. Það munar talsverðu á því,“ sagði Ingvar.

Mikilvægt að hafa strax samband við bankann

Ef fólk telur sig hafa orðið fyrir svikum sé mikilvægt að hafa strax samband við bankann sem gefur út kortið sem notað var við viðskiptin.

„Í heimabanka getur fólk haft kortin sín fryst, sem það er ekki að nota, og svo er hægt að loka kortum í heimabanka. En um leið og fólk grunar eitthvað óeðlilegt, þá á að hafa strax samband við bankann.“

Einnig sé gott að hafa í huga að hafa ekki of háa innstæðu eða heimild á kortum sem notuð eru í netverslun og þá var bent á að hægt að nota sérstakt kort fyrir netverslun.

Hægt að spreyta sig á netsvikaprófi SFF

Ingvar benti hlustendum á netsvikapróf SFF, sem finna má hér. Þar getur fólk spreytt sig á nokkrum spurningum og kannað hvar það stendur að vígi gagnvart tilraunum netþrjóta til þess að svindla á því.

Að lokum minnti Ingvar á að mest um vert væri að vera á varðbergi, án þess að neita sér endilega um að gera góð kaup, sem sannarlega sé hægt að gera á tilboðsdögum í nóvember.

„Heilbrigð tortryggni, hún er mikilvæg,“ sagði Ingvar að lokum.