Ertu að gera hættulega góð kaup?

Fram undan eru stórir tilboðsdagar á borð við dag einhleypra, svartan föstudag og stafrænan mánudag. Margir nýta þessa daga til að hefja jólaverslunina og gera góð kaup. Á sama tíma eykst hættan á að netsvikarar reyni að nýta sér verslunargleðina.

Því er gott að hafa í huga að ef tilboðið hljómar of gott til að vera satt er það líklega ekki satt.

Netsvikarar útbúa meðal annars falskar netverslanir, trúverðugar auglýsingar á samfélagsmiðlum og SMS-skilaboð sem virðast koma frá þekktum verslunum eða flutningafyrirtækjum. Markmiðið er að komast yfir kortaupplýsingar og lykilorð eða fá fólk til að samþykkja greiðslur til svikaranna.

Skipulagðir glæpahópar standa oft að svikunum og með aðstoð gervigreindar geta svikatilraunir þeirra orðið enn trúverðugri. Tæknin verður sífellt betri og erfiðara er að verjast svikunum. Því er mikilvægt að fara öllu með gát, staldra við og spyrja sig: Eru vísbendingar um eitthvað óvenjulegt í kaupferlinu? Er tilboðið of gott til að vera satt? Er seljandinn í raun sá sem hann segist vera?

Svikarar nýta sér tímapressu

Eitt helsta tæki netsvika er að telja fólki trú um að það sé undir tímapressu og að bregðast þurfi strax við. Tilboðið gildir aðeins í nokkrar mínútur, síðasta eintakið er að seljast eða greiða þarf tafarlaust sendingargjald til að fá pakka afhentan.

Mitt í hamagangi hversdagsins þegar mikið er um tilboð og vörusendingar getur verið auðveldara að falla fyrir slíkum skilaboðum. Því er mikilvægt að gefa sér tíma til að kanna hvort allt sé með felldu áður en kaup eru gerð eða greiðsla samþykkt. Það er ólíklegt að þetta sé einmitt síðasta eintakið eða engin önnur tilboð bjóðist.

SMS-svik, gylliboð á samfélagsmiðlum og falskar netverslanir

Á netsöludögum fjölgar þeim sem eiga von á pakkasendingum. Netsvikarar nýta sér það með fölskum tilkynningum í SMS eða tölvupósti þar sem fólk er beðið um að greiða lítið gjald, uppfæra afhendingarupplýsingar eða staðfesta sendingu.

Skilaboðin geta einnig virst koma frá banka eða öðrum traustum aðila. Þar kann að vera fullyrt að grunsamleg færsla hafi átt sér stað eða að bregðast þurfi tafarlaust við til að koma í veg fyrir fjárhagslegt tjón.

Mikilvægt er að varast hlekki í óvæntum skilaboðum og gefa aldrei upp kortaupplýsingar, lykilorð eða öryggiskóða í gegnum slíka hlekki. Öruggast er að fara sjálfur inn á vefsíðu eða app viðkomandi fyrirtækis og kanna málið þar.

Fimm ráð til að forðast netsvik á tilboðsdögum

Flýttu þér hægt. Taktu þér tíma til að kanna tilboðið.

Athugaðu netverslunina. Skoðaðu vefslóðina og kannaðu hvort seljandinn sé traustur.

Varastu hlekki í SMS og tölvupósti. Farðu frekar beint á vefsíðu fyrirtækisins.

Passaðu upp á kortaupplýsingar og rafræn skilríki. Samþykktu aldrei greiðslur eða auðkenningarbeiðnir sem þú kannast ekki við.

Grunar þig svik? Hafðu strax samband við bankann þinn og tilkynntu svikin til lögreglu. Þá er hægt að loka og frysta kort í heimabanka.

Kemur þú auga á svikin?

En hversu vel ert þú að þér í vörnum gegn helstu svikatilraununum? Þú getur spreytt þig á nýju netsvikaprófi SFF og kynnt þér tólf hollráð til að verjast svikum hér að neðan:

Taktu netsvikapróf SFF og kynntu þér hollráð gegn netsvikum.

Það er alltaf ánægjulegt að gera góð kaup, en bestu kaupin eru þau sem þú sérð ekki eftir.

Höfundur er greininga- og samskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu.

Greinin birtist fyrst á Vísi þann 10. nóvember 2026.