Illa ígrunduð skyndilausn sem á eftir að meta

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, var til viðtals í Morgunblaðinu um liðna helgi til þess að ræða nýútkomna umsögn samtakanna um frumvarp til breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027. Í frumvarpinu er að finna tillögu til breytingar á sértækum bankaskatti sem lagður er á skuldir fjármálafyrirtækja, um rúmlega 75%. Hækkuninni er ætlað að skila sex milljörðum aukalega á ári í ríkissjóð.
Kostnaðinum þegar mætt
Í umfjöllun Morgunblaðsins er vísað til umsagnar samtakanna, þar sem fram kemur að samtökin telji boðaða skattahækkun vera illa ígrundaða skyndilausn sem geti haft langtímaafleiðingar. Skatturinn sem um ræðir leggst á skuldir fjármálafyrirtækja umfram 50 milljarða og er ekki frádráttarbær frá tekjuskatti, sem geri skattinn meira íþyngjandi en ella. Þá sé skattstofninn skuldir, sem skatturinn er reiknaður út frá, að verulegu leyti innlán viðskiptavina. Þannig séu innlán viðskiptavina 63% af skuldum kerfislega mikilvægu viðskiptabankanna og heimilin eiga 52% innlánanna samkvæmt gögnum Seðlabanka Íslands.
„Ef skattinum er ætlað að mæta tímabundnum aðstæðum, þá væri eðlilegt að hækkunin yrði einnig tímabundin, t.d. með sólarlagsákvæði og myndi þannig sjálfkrafa falla niður eftir t.d. 1-2 ár. Það er áratugur síðan Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn áætlaði að íslenska ríkið hefði endurheimt beinan kostnað af endurreisn fjármálakerfisins og gott betur. Þrátt fyrir það er skatturinn enn við lýði og lagaákvæðið stendur óbreytt,“ sagði Heiðrún í samtali við Morgunblaðið.
Eignarhaldið skiptir máli
Þá benda SFF á að áætlaðar sex milljarða króna skatttekjur af hækkuninni muni ekki endilega skila þeirri fjárhæð til ríkisins. Þar vegur þungt 40% eignarhald ríkisins í bankakerfinu í gegnum eignarhlut þess í Landsbankanum. Þar að auki eiga lífeyrissjóðir um 29% í bönkunum og 10% eru í beinni eigu einstaklinga. SFF hafa bent á að greiningar þess efnis að skattahækkunin geti dregið úr arðgreiðslugetu Landsbankans til ríkisins og rýrt eignarhlut ríkisins. Það fer þó eftir ákvörðun bankans, og eigenda hans, hvernig arðsemiskröfu verður háttað.
„Við fáum ekki séð að stjórnvöld hafi ráðist í greiningu á heildaráhrifunum fyrir hagkerfið og ríkissjóð. Það væri til bóta ef stjórnvöld myndu ráðast í þá greiningu áður en lengra er haldið. Þá er fyrirsjáanleikinn nær enginn sem dregur úr trúverðugleika stjórnvalda. Það er rúmt ár síðan ríkið seldi 31 þúsund Íslendingum hlut sinn í Íslandsbanka, en ekkert kom fram í söluferlinu um að hækkun bankaskatts stæði til,“ sagði Heiðrún.






%20(1920%20x%201080%20px).png)








%20(1920%20x%201080%20px)%20(1).jpg)