Opið fyrir tilnefningar til Umhverfisfyrirtækis ársins 2026

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavík Grand frá kl. 13:00–15:15 og verður skráning auglýst fljótlega.

Búið er að opna fyrir tilnefningar til Umhverfisfyrirtækis ársins 2026. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem skarar fram úr í umhverfis- og loftslagsmálum og sýnir í verki hvernig árangur næst með markvissum aðgerðum, nýsköpun og ábyrgri stjórnun.

Í ár er horft sérstaklega til ábyrgrar ákvarðanatöku í umhverfismálum.

Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Frestur til að senda inn tilnefningu er til og með 10. október næstkomandi.

Hér er hægt að senda inn tilnefningu.