Hærri skattar, töpuð tækifæri?

Hærri skattar, töpuð tækifæri? er yfirskrift viðburðar sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu standa fyrir þann 14. september næstkomandi.  

Hvar stendur íslenskt fjármögnunarumhverfi og í hvaða átt stefnir það? Hvaða áhrif hafa skattar, regluverk og aðgerðir stjórnvalda í þeim efnum? Hvar liggja framtíðartækifærin til að fjármagna íslenskt atvinnulíf í átt til bættra lífskjara? Hversu mikil áhrif hefur fyrirsjáanleiki í skattlagningu og reglusetningu á samkeppnishæfni Íslands? Þessum spurningum og mörgum fleiri verður velt upp á ráðstefnunni auk þess að fjallað verður um skatta á íslenska banka í alþjóðlegum samanburði.

Þátttakendur á fundinum verða:

• Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar
• Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
• Ellert Arnarson, fjármálastjóri Amaroq Minerals
• Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og stofnandi Intellecon
• Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
• Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka 
• Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka
• Lars Christensen, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Ipace
• Lev Ratnovski, hagfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
• Reynir Stefán Gylfason, endurskoðandi og meðeigandi hjá KPMG
• Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins
• Tanya Zharov, lögfræðingur og stjórnarmaður í atvinnulífinu

Þar að auki verða pallborðsumræður á fundinum þar sem lykilfólk úr íslensku atvinnulífi og stjórnmálum mun fara yfir stöðuna.

Fundarstjóri verður Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.

Fundurinn hefst kl. 9 í Smárabíói, mánudaginn 14. september. Húsið opnar kl. 8:30. Fundurinn er opinn öllum en skráning hér að neðan er nauðsynleg.