Svikararnir bjóða alltaf besta til­boðið

Hönnunarvara á 80% afslætti. Nýjasti síminn á hálfvirði. Síðasta eintakið og aðeins tíu mínútur eftir af tilboðinu. Hver vill missa af slíkum kaupum? Það er einmitt það sem svikararnir treysta á.

Svartur föstudagur er 27. nóvember og netmánudagur fylgir í kjölfarið 30. nóvember. Nóvember er orðinn að sannkallaðri tilboðsveislu. Margir nýta þessa daga til að gera góð kaup og hefja jólainnkaupin í von um að eiga náðugri daga í desember. En það eru ekki eingöngu verslanir sem undirbúa sig. Netþrjótar líta á tilboðsdaga sem kjörið tækifæri til að láta til skarar skríða. Þegar pósthólf og símar fyllast af tilboðum, auglýsingum og tilkynningum um vörusendingar verður auðveldara að fela svik meðal raunverulegra skilaboða. Þegar allir eru að leita að góðum tilboðum er auðvelt að freistast til að smella.

Sama markmið, nýjar aðferðir

SMS-skilaboð berast í nafni flutningafyrirtækja þar sem óskað er eftir greiðslu fárra króna í sendingargjald. Falskar netverslanir líkja eftir þekktum verslunum og auglýsingar á samfélagsmiðlum lokka fólk með ótrúlegum afslætti.

Aðferðirnar eru ólíkar en markmiðið það sama, að komast yfir kortaupplýsingar, lykilorð eða öryggiskóða, eða fá fólk til að samþykkja auðkenningu með rafrænum skilríkjum. Allt til þess að komast yfir fjármuni.

Gervigreind hefur gert svik enn trúverðugri. Málvillur og óvenjulegt orðalag, sem áður gátu verið augljós viðvörunarmerki, eru ekki lengur jafn áreiðanleg. Falskar vefsíður og skilaboð geta verið afar sannfærandi, jafnvel fyrir þá sem telja sig vel á varðbergi.

Þetta undirstrikar að netsvik snúast ekki aðeins um tæknilegar blekkingar. Svikarar nýta sér traust fólks, venjur og aðstæður til að fá það til að taka ákvarðanir sem það myndi annars ekki taka.

Þegar tíminn er að renna út

Eitt helsta vopn svikara er tímapressa. Tilboðið rennur út eftir tíu mínútur. Aðeins eitt eintak er eftir. Greiða þarf sendingargjald strax, annars verður pakkinn endursendur. Tilgangurinn er að fá fólk til að bregðast við áður en það gefur sér tíma til að kanna hvort allt sé með felldu. Á stórum tilboðsdögum er þessi aðferð sérstaklega varasöm, enda eru raunveruleg tilboð oft tímabundin. Nokkrar mínútur til að kanna hvort tilboð „sé of gott til að vera satt“ geta skipt sköpum. Við þurfum öll að vera á varðbergi, vanda okkur við að greina á milli raunverulegra tilboða og svika og muna að það sem virðist of gott til að vera satt er það oftast.

Fimm hollráð fyrir verslunardagana

Ekki láta reka á eftir þér. Gefðu þér tíma til að kanna tilboð áður en þú greiðir, sérstaklega ef afslátturinn virðist ótrúlegur.

Fylgstu með færslunum þínum. Svikarar geta meðal annars reynt að taka út margar litlar fjárhæðir. Farðu reglulega yfir færslur og tilkynntu strax ef þú verður var við eitthvað óeðlilegt.

Varastu falskar tilkynningar um vörusendingar. Ef óskað er eftir greiðslu sendingargjalds skaltu kanna málið beint hjá flutningafyrirtækinu.

Gefðu aldrei upp lykilorð, PIN-númer eða öryggiskóða vegna óvæntra skilaboða eða símtala.

Farðu varlega með rafræn skilríki. Samþykktu aldrei auðkenningu eða undirritun nema þú hafir átt frumkvæði að henni og vitir nákvæmlega hvað þú ert að samþykkja.

Ó nei! Ég lenti í gildru

Ef þú telur þig hafa orðið fyrir svikum skiptir máli að bregðast hratt við. Frystu eða lokaðu greiðslukorti ef við á, hafðu tafarlaust samband við viðskiptabankann eða kortaútgefanda og tilkynntu málið til lögreglu í gegnum netsvikagáttina. Það getur komið fyrir hvern sem er að láta blekkjast. Svikarar nýta sér traust, tímapressu og aðstæður þar sem fólk á síst von á svikum.

Kemur þú auga á svikin?

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu standa í nóvember fyrir vitundarvakningu um netsvik og hafa tekið saman hollráð gegn netsvikum til að hjálpa almenningi að þekkja aðferðir svikara. Samtökin hafa einnig útbúið netsvikaprófið „Kemur þú auga á svikin?“, þar sem hægt er að spreyta sig á raunhæfum dæmum og kanna hversu auðvelt er að láta blekkjast. Prófið tekur aðeins nokkrar mínútur. Það gæti reynst besta fjárfestingin sem þú gerir á tilboðsdögum.

Greinin birtist fyrst á Vísi þann 23. nóvember.