Fyrirsjáanleiki og heilbrigt rekstrarumhverfi lykilatriði fyrir atvinnulífið

Fyrirhuguð hækkun bankaskatts, fyrirsjáanleiki í rekstrarumhverfi, umfang regluverks og vöxtur íslenskrar fjártækni voru meðal þess sem rætt var við Ingvar Haraldsson, greiningar- og samskiptastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, í Fjármálakastinu í umsjón Magdalenu Önnu Torfadóttur á dögunum.
Mikilvægt sé að horfa á skattlagningu og regluverk fjármálafyrirtækja í samhengi við samkeppnishæfni Íslands, fjárfestingu og möguleika atvinnulífsins til vaxtar. Þrátt fyrir krefjandi efnahagsumhverfi taldi Ingvar jafnframt fjölmörg tækifæri fram undan, meðal annars í nýjum atvinnugreinum og fjártækni.
Bankaskattar og áhrif á samkeppnishæfni
Ingvar sagði fyrirhugaða hækkun bankaskatts vekja upp grundvallarspurningar um rekstrarumhverfi íslenskra fjármálafyrirtækja og samkeppnishæfni Íslands. Hann vísaði meðal annars til nýlegrar greiningar KPMG fyrir SFF þar sem fram kom að sértækir skattar á íslenska banka væru að meðaltali fimmfalt hærri en í Vestur-Evrópu og yrðu sjöfalt hærri ef boðuð skattahækkun næði fram að ganga. Ísland væri jafnframt eina landið í Vestur-Evrópu sem legði sértæka skatta á skuldir, hagnað og laun fjármálafyrirtækja á sama tíma.
Varnaðarorð innlendra og erlendra sérfræðinga
Hann rifjar einnig upp það sem fram kom í Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið sem gefin var út árið 2018. Þá hafi myndast nokkuð breið samstaða um að sértæk skattlagning af því tagi sem nú stendur til að auka væri óheppileg. Það hafi meðal annars komið fram að hálfu Seðlabankans, Fjármálaeftirlitsins og Bankasýslu ríkisins auk sérfræðinga úr háskólasamfélaginu. Margir þeirra aðila hafi ítrekað fyrri afstöðu sína á undanförnum vikum.
Ingvar benti m.a. á erindi Lev Ratnovski, hagfræðings Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, á ráðstefnu SFF í september, þar sem Ratnovski sagði að æskilegt væri að bera hugsanlegar skattahækkanir saman við aðrar leiðir sem kæmu til álita að bæta afkomu ríkissjóðs. Ingvar benti á að hækkun bankaskatts hefði til að mynda ekki verið meðal tillagana í reglulegum skýrslum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og OECD á síðustu árum um Ísland þar sem bent hafi verið á mögulegar leiðir til aukinnar tekjuöflunar og bættar skilvirkni í íslenska skattkerfinu.
Ingvar sagði jafnframt óljóst hver nettóáhrif hækkunarinnar yrðu á ríkissjóð, m.a. í ljósi þess að ríkið væri sjálft stærsti hluthafi fjármálafyrirtækja hér á landi. Hann sagði æskilegt að stjórnvöld greindu þessi áhrif heildstætt áður en lengra væri haldið.
Fyrirsjáanleiki skiptir máli fyrir fjárfestingu
Ingvar sagði fyrirhugaða hækkun bankaskatts hafa komið töluvert á óvart. Þegar áformin hefðu verið kynnt hefði innan við ár verið liðið frá því að ríkið seldi hlut í Íslandsbanka til rúmlega 30 þúsund Íslendinga, án þess að komið hefði verið inn á fyrirhugaða skattahækkun hefði komið fram í söluferlinu.
Þá vísaði Ingvar einnig til erindis hagfræðingsins Lars Christensen á ráðstefnu SFF í september, þar sem mikilvægi fyrirsjáanleika hefði verið sérstaklega undirstrikað. Ísland væri eldfjallaeyja sem byggi óhjákvæmilega við ýmiss konar ytri óvissu en skattastefna væri hins vegar meðal þess sem stjórnvöld hefðu beina stjórn á. Óvissa sem fælist í tíðum og óvæntum breytingar á sköttum gætu, samkvæmt rannsóknum, dregið úr fjárfestingu. Fyrirsjáanleiki skipti því miklu.
Umfangsmikið regluverk og kostnaður á litlum markaði
Regluverk fjármálafyrirtækja var einnig til umræðu í hlaðvarpinu. Ingvar vísaði til erlendrar greiningar þar sem fram kom samevrópska regluverkið um fjármálamarkaði, sem Ísland væri hluti af, teldi alls um 95 þúsund blaðsíður. Hann sagði jákvætt að bæði hér á landi og í Evrópu væri nú horft til einföldunar þess af hálfu opinberra aðila, þó enn ætti eftir að koma í ljós hvað kæmi út úr þeirri vinnu. Sérstaklega þyrfti að gæta að svokallaðri gullhúðun, þegar séríslenskum og meira íþyngjandi kröfum væri bætt við Evrópureglur.
Kostnaður við að uppfylla reglur væri að stórum hluta fastur og því hlutfallslega þyngri á litlum markaði eins og þeim íslenska. Ingvar vísaði til skýrslu Intellecon þar sem fram kom að vel á annað hundrað starfsmenn fjármálafyrirtækja sinntu meðal annars skýrsluskilum, upplýsingagjöf til hins opinbera og innleiðingu nýrra laga og reglna.
Ingvar nefndi þó einnig dæmi um lagabreytingu sem væri til þess fallin að létta neytendum lífið. Fyrirhugaðar lagafrumvarp um rafrænar skuldaviðurkenningar gæti til dæmis gert fólki kleift að ganga alfarið rafrænt frá húsnæðislánum án þess að mæta sérstaklega í útibú.
Íslendingar hreyfanlegir og mikil gróska í fjártækni
Ingvar sagði gögn SFF sýna að Íslendingar væru duglegir að færa viðskipti sín á milli fjármálafyrirtækja. Í könnun Gallup, þar sem notaðar voru sambærilegar spurningar og í könnun Evrópusambandsins, hefðu Íslendingar reynst duglegri en íbúar allra ESB-ríkja að færa meðal annars húsnæðislán, sparnað og greiðslukort milli fjármálafyrirtækja.
Hann nefndi að gott stafrænt aðgengi að fjármálaþjónustu eiga þátt í þessum hreyfanleika. Með rafrænum skilríkjum væri hægt að hefja viðskipti við nýtt fjármálafyrirtæki eða opna reikning með örfáum smellum.
Mikil gróska væri jafnframt í íslenskri fjártækni líkt og nýleg skýrsla Northstack, sem unnin var fyrir SFF og Íslandsstofu í samstarfi við Reykjavík Fintech, hafi leitt í ljós. Samkvæmt skýrslunni eru yfir 70 fjártæknifyrirtæki hér á landi með hátt í þúsund manns starfandi í geiranum. Meirihluti tekna fyrirtækjanna sem fjallað var um í Northstack skýrslunni yrði til erlendis og væri fyrirtækin þannig að flytja út íslenskt hugvit. Þá séu hefðbundin fjármálafyrirtæki einnig að verulegu leyti orðin fjártæknifyrirtæki þar sem umtalsverður hluti starfseminnar sé á sviði upplýsingatækni.
Tækifæri kalla á heilbrigt fjármögnunarumhverfi
Að lokum sagði Ingvar ástæða væri til bjartsýni þrátt fyrir hátt vaxtastig, verðbólgu og krefjandi efnahagsumhverfi. Tækifæri væru meðal annars í aukinni orkuöflun, gagnaverum, landeldi og hugvitsdrifnum atvinnugreinum.
Slík uppbygging kallaði hins vegar á fjármagn og því skipti máli að huga að þeim grunni sem fjármögnun atvinnulífsins byggði á.
„Þessi tækifæri kalla flest á fjármagn og það þarf auðvitað að huga að því að fjármögnunarumhverfið sé líka heilbrigt og hlúa að þeim grunni líka,“ sagði Ingvar að lokum í Fjármálakastinu.







%20(1920%20x%201080%20px).png)






