Afgerandi stuðningur við að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi

Rúmlega níu af hverjum tíu landsmönnum telja skipta miklu máli að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi í grunnskólum landsins. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem Gallup vann fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu.
Viðskiptablaðið fjallaði um könnunina á dögunum og ræddi við Heiðrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra SFF, vegna hennar.
Af þátttakendum í könnuninni telja 92% fjármálafræðslu skipta miklu máli, þar af 68% mjög miklu máli. Aðeins 3% telja hana skipta litlu eða engu máli.
Mikill munur á því hvar fræðslan fer fram og hvar fólk vill fá fræðslu
Einnig tóku þátttakendur afstöðu til þess hvar þeim þætti almennt að fólk ætti að læra mest um peninga og fjármál, sem og hvar þeir sjálfir hafi fengið fræðslu í málaflokknum.
Þar sögðust 81,1% telja að fólk ætti að fá slíka fræðslu í grunnskóla, en aðeins 12,3% sögðust hafa fengið slíka fræðslu þar. Þá sögðust 75,4% telja að slíka fræðslu ætti að bjóða upp á í framhaldsskólum, en aðeins 19,8% sögðust hafa gert það sjálf í framhaldsskóla.
Aðeins 13% sögðust telja að fólk ætti að læra um fjármál á samfélagsmiðlum, í fjölmiðlum eða á netinu, en 43,3% sögðust hins vegar hafa fengið fjármálafræðslu á þeim vettvangi.
Könnunin var framkvæmd á netinu dagana 12. til 24. mars. Úrtakið var 2.023 manns, 18 ára og eldri. Svör bárust frá 808 manns.
Nauðsynlegt að jafna stöðu barna
Í samtali við Viðskiptablaðið segir Heiðrún niðurstöðurnar sýna fram á þörfina fyrir öfluga fjármálalæsiskennslu.
Um 78% hafa lært um fjármál af eigin reynslu eða mistökum. „Þetta getur verið afar dýr kennslustund, annað hvort af eigin reynslu eða frá einhverjum sem við þekkjum. Ef við byrjum að misstíga okkur í fjármálum getur verið erfitt að koma okkur úr þeim vandræðum. Rétt eins og við hleypum ekki börnunum okkar út í umferðina án þess að kenna þeim umferðarreglum þá hlýtur það að vera markmið okkar að engin börn fari út í lífið án þess að hafa kost á því að læra grundvallaratriði um fjármál.“
Þá segir hún afar mikilvægt að börnum sé ekki mismunað eftir baklandi þegar kemur að aðgengi að fjármálafræðslu.
„Við verðum að jafna stöðu allra barna til að hafa tækifæri til þess að byggja upp heilbrigðan fjárhag,“ segir Heiðrún. Í því tilliti dugi ekki að fjármálafræðsla fari fram heima við. Sum börn hafi einfaldlega ekki það bakland og því verði þessi kennsla að fara fram í grunnskólanum.
„Þá gera margir ráð fyrir því að foreldrar viti að það sem þau miðla til barna sinna séu góð ráð, en kannski er það ekki alltaf svo.“
Yfir 20 þúsund bækur gefnar skólum
Fjármálavit er fræðsluvettvangur með áherslu á námsefni í fjármálalæsi sem Samtök fjármálafyrirtækja starfrækja með stuðningi Landssamtaka lífeyrissjóða. Fjármálavit hefur frá árinu 2017 gefið grunn- og framhaldsskólum um 23 þúsund eintök af bókum eftir Gunnar Baldvinsson, sem skrifaðar eru fyrir mismunandi stig grunn- og framhaldsskóla.
Fjármálavit heldur einnig úti Fjármálaleikunum, sem er árleg landskeppni grunnskóla í fjármálalæsi og undankeppni Evrópukeppninnar í fjármálalæsi. Á þessu ári tóku um 2.000 nemendur úr 50 grunnskólum þátt í leikunum.
Tryggja verði jöfn tækifæri til fræðslu
Heiðrún ræddi könnunina og mikilvægi fjármálalæsis í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni á dögunum.
Þar lagði hún áherslu á að fjármálalæsi yrði kennt með heildrænum hætti þannig að nemendur grunnskóla væru meðvitaðir um að verið væri að kenna fjármálalæsi.
„Núna er það ekki þannig að allir hafi áhuga á fjármálum, hvorki börn né fullorðnir. En við verðum að tryggja að öll börn hafi tækifæri til þess að læra um fjármál og hafi tækifæri til þess að byggja upp heilbrigðan fjárhag þegar þau fara út í lífið. Rétt eins og ég hleypi ekki börnunum mínum út í umferðina nema þau kunni umferðarreglur. Af hverju erum við að hleypa börnunum okkar út í lífið án þess að kunna grundvallaratriði í fjármálum?“ sagði Heiðrún meðal annars í viðtalinu, sem má heyra hér að neðan.






%20(1920%20x%201080%20px).png)








%20(1920%20x%201080%20px)%20(1).jpg)