Fjármálavit gefur grunnskólum nýtt borðspil um fjármálalæsi

Fjármálavit gefur grunnskólum landsins eintak af nýja borðspilinu Aur og áhættu.

Spilið er afrakstur nýsköpunaráfanga nemenda í Verzlunarskóla Íslands og er hugsað sem skemmtilegt uppbrot í skólastarfi en einnig að það nái til sem flestra og þjóni þannig sínum tilgangi að efla almennt fjármálalæsi.

Í spilinu geta leikmenn fjárfest og tekið áhættu, en notast er við svokölluð markaðs- og óvissuspil sem hafa áhrif á það hvernig leikurinn spilast, enda getur allt gerst á ófyrirsjáanlegum markaði. Spilinu er ætlað að hjálpa leikmönnum að fá innsýn í hlutabréfamarkaðinn, skilja á skemmtilegan hátt hvernig viðskipti fara fram og auka þekkingu leikmanna á grundvallarhugtökum í fjármálum.

Höfundar spilsins eru Kolbrún Jónsdóttir, Salka Sigmarsdóttir, Sonja Oliversdóttir og Þórunn Jenný Guðmundsdóttir. Fjármálavit veitti höfundum styrk til útgáfu spilsins.  

Fulltrúar grunnskóla geta pantað eitt ókeypis eintak á hvern skóla hér. Aðrir áhugasamir geta keypt spilið beint af höfundum með því að leggja inn pöntun á netfangið aurogahaetta@gmail.com.

Fjármálavit er fræðsluvettvangur í eigu Samtaka fjármálafyrirtækja, og nýtur einnig stuðnings frá Landssamtökum lífeyrissjóða.