Fréttabréf SFF: Þingveturinn gerður upp og aukið við Norðurlandamet í skattheimtu

Farið er um víðan völl í nýútkomnu fréttabréfi SFF. Þar er meðal annars fjallað um fund sem samtökin héldu í júní, í tilefni af boðaðri hækkun sértækra skatta á banka hér á landi. Skattarnir eru nú þegar hærri en í samanburðarlöndum Íslands, þar með talið á Norðurlöndunum. Fundurinn var vel sóttur og á fimmta þúsund fylgdust með honum í beinu streymi.
Þar er einnig að finna samantekt yfir umsagnir sem SFF skiluðu á liðnum þingvetri. SFF skilaði um 30 umsögnum um ýmis mál sem snerta starfsemi aðildarfélaga samtakanna með einum eða öðrum hætti.
Þá er sagt frá viðburði sem SFF héldu ásamt Íslandsstofu, í samstarfi við Reykjavík Fintech. Þar var fjallað um nýja yfirferð Northstack um stöðu og framtíð fjártækni á Íslandi. Eins er sagt frá frábærum árangri Íslands í Evrópukeppninni í fjármálalæsi, þar sem tveir glæsilegir fulltrúar úr 10. bekk Garðaskóla kepptu, og enduðu efst Norðurlandanna. Þá er sagt frá því sem mikilvægt er að hafa í huga þegar fólk verður fyrir netsvikum, en þar skipta skjót viðbrögð höfuðmáli.


%20(1920%20x%201080%20px)%20(1).jpg)













