Vísbendingar um vaxandi umfang tryggingasvika í tengslum við skipulagða brotahópa

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, var nýverið til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Þar ræddi hún umfang tryggingasvika og áhrifin sem þau hafa. Í viðtalinu sagði hún tryggingasvik víðtækt vandamál sem farið hafi vaxandi, bæði hér á landi og erlendis.
„Tryggingafélögin hafa undanfarin misseri orðið vör við verulega aukningu mála sem tengjast tryggingasvikum. Bæði hvað varðar fjölda og umfang,“ sagði Heiðrún í viðtalinu.
Erfitt sé að fullyrða um umfang svika í heild en vísbendingar séu um að umfang þaulskipulagðra tryggingasvika, oftar en ekki framin af glæpahópum, sé nokkuð og vaxandi.
Erlendir og íslenskir glæpahópar að verki
Vísbendingar eru um að skipulagðir glæpahópar stundi markviss tryggingasvik til að afla fjármagns. Fram kemur í skýrslu Ríkislögreglustjóra frá nóvember 2025 að hér á landi séu um 20 skipulagðir brotahópar, tvöfalt fleiri en fyrir um áratug síðan. Þessi þróun er alvarleg ógn við okkar samfélag, en í nokkru samræmi við það sem gerist í löndunum í kringum okkur.
„Þetta eru bæði erlendir hópar sem tengjast alþjóðlegum hópum, en einnig íslenskir. Þetta eru skipulagðir hópar sem hafa þetta nánast að atvinnu, að finna leiðir til að svíkja út fjármuni,“ sagði Heiðrún.
Útlit er fyrir að bæði sé um að ræða fólk með búsetu hér á landi og fólk sem komi hingað til lands gagngert til þess að stunda svik.
Efla þarf getu lögreglu til að bregðast við
Heiðrún sagði einnig að gera þyrfti betur þegar kemur að rannsóknum lögreglu í þessum málum.
„Þar er borið við fjárskorti og hvernig fjármagn lögreglu er skipulagt. Ég held að við séum öll sammála um það að það þarf virkilega að horfa betur á þessa skipulögðu glæpastarfsemi og gefa lögreglu svigrúm til þess að fara betur ofan í það.“
Heiðrún segir að mikilvægt sé að hafa í huga að langflestir viðskiptavinir tryggingafélaga kæmu fram af heiðarleika og ábyrgð þegar kæmi að tjónamálum. Stóra vandamálið væru skipulagðir glæpahópar sem svíki markvisst út fé.
„Þeir sem eru að stunda þetta, það eru meiri líkur en minni á að þeir gætu líka verið í annars konar brotastarfsemi. Það er því ákaflega mikilvægt fyrir okkur sem samfélag að reyna að koma í veg fyrir skipulagða brota- og glæpastarfsemi. Ekki bara í vátryggingum, heldur öll svik, þar á meðal á netinu. Það er það sem við leggjum áherslu á, að allir séu vakandi.“




%20(1920%20x%201080%20px)%20(1).jpg)










