Sérblað Viðskiptablaðsins vegna SFF dagsins 2024

Viðskiptablaðið gaf út veglegt sérblað í tengslum við SFF daginn 3. apríl síðastliðinn.

Þar er meðal annars rætt við:

  • Heiðrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF).
  • Benedikt Gíslason, bankastjóra Arion banka og formann stjórnar SFF.
  • Friðbert Traustason, formann Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja um árabil.
  • Gústaf Steingrímsson, hagfræðing SFF, um arðsemi og skattlagningu banka hér á landi í samhengi við aðrar atvinnugreinar og banka í Evrópu.
  • Jónu Björk Guðnadóttur, yfirlögfræðing SFF og Dr. Margréti Einarsdóttur, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, um regluverk og gullhúðun EES reglna sem tengjast fjármálamörkuðum.
  • Kari Olrud Moen, framkvæmdastjóri Finans Norge, systursamtaka SFF í Noregi.
  • Kristínu Lúðvíksdóttur, verkefnastjóra Fjármálavits, um fjármálaleikana, landskeppni grunnskólanna í fjármálalæsi og fjármálafræðsluvettvanginn Fjármálavit.

Þá skrifuðu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra og Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, pistla í blaðinu.

Nálgast má blaðið hér til hliðar.