Skýrsla Northstack - Fintech Iceland 2026 Report

Ný yfirlitsskýrsla um íslenska fjártækni er komin út og var fyrst kynnt á SFF deginum 2026 þann 15. apríl. Skýrslan var unnin af Northstack fyrir Íslandsstofu og Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu en Reykjavik Fintech komu einnig að útgáfunni. Skýrslan ber yfirskriftina Fintech Iceland 2026: An ecosystem review and map.

Skýrslan dregur upp mynd af íslenskri fjártækni eins og húnlítur út í dag sem öflugum og vaxandi geira sem hefur skapað sér sérstöðu bæði hér á landi og á Norðurlöndunum. Sem dæmi eru flest fjártæknifyrirtæki hér á landi á hvern íbúa af öllum Norðurlöndunum.

Nálgast má samantekt á efni skýrslunnar á íslensku hér.

Skýrsluna í heild má nálgast hér.