Starfsumgjörð íslensks verðbréfamarkaðar
Stjórn SFF ákvað í janúar 2014 að setja á laggirnar þriggja manna stýrihóp vegna verkefnis um starfsumgjörð verðbréfamarkaðar.
Mikilvægt er að innlendur verðbréfamarkaður starfi eftir alþjóðlega viðurkenndri umgjörð. Þannig geti hann þjónað sem lærdómsferli fyrir aðgang að stærri mörkuðum fyrir útgefendur verðbréfa, milliliði og fjárfesta hér á landi, en einnig greitt fyrir aðgengi erlendra þátttakenda að íslenskum markaði. Jafnframt þarf uppbygging markaðarins að vera einföld og hagkvæm og auka þannig möguleika útgefenda til að afla sér fjármagns.
Alls geymir skýrslan 22 úrbótatillögur.