Brunavarnir og öryggi til framtíðar, 4. september

Fimm ár eru liðin frá eldsvoðanum á Bræðraborgarstíg þar sem veikleikar í kerfum og regluverki komu skýrt í ljós. Í kjölfarið hófst víðtæk umbótavinna þar sem stofnanir og atvinnulíf tóku höndum saman með það markmið að efla öryggi og bæta eftirlit. Af því tilefni munu Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, og Samtök iðnaðarins sameiginlega standa fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni: Brunavarnir og öryggi til framtíðar Samhæfð viðbrögð, lagaumgjörð og hlutverk stofnana og atvinnulífs.

Farið verður yfir helstu lærdóma síðustu fimm ára, hvaða breytingar hafa orðið á regluverki, ábyrgðarskiptingu og framtíðaráskoranir í brunavörnum.

Meðal spurninga sem leitast verður við að svara á ráðstefnunni:

  • Hvernig stöndum við á Íslandi þegar kemur að brunvörnum?
  • Hvert er umfang bruna og brunatjóna á Íslandi?
  • Hvað eru tækifæri til að gera betur á þessu sviði hér á landi?

Ráðstefnan stendur yfir frá klukkan 9:00-10:30 á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 4. september í salnum Háteig á 4. hæð. Léttar morgunveitingar frá klukkan 8:30.

Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða:

  • Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra
  • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og framkvæmdastjóri Almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins - Hvað ef ég hefði…? - Samfélagsleg ábyrgð okkar allra
  • Regína Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri brunavarna- og markaðseftirlitssviðs HMS - Bræðraborgarstígur fimm árum síðar - frá harmleik til umbóta.
  • Svali  H. Björgvinsson, framkvæmdastjóri markaðsmála og viðskiptaþróunar hjá Sjóvá.
  • Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs HMS - Brunabótamat - öryggi almennings vegna fjárhagslegs tjóns af völdum bruna.
  • Guðni I. Pálsson, brunahönnuður hjá COWI, Brunahönnun bygginga - lærdómur, áskoranir og tækifæri 
  • Fundarstjóri: Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF

Skráning hér: