Fjártækni á Íslandi 2026

Við bjóðum ykkur að koma og fagna með okkur útgáfu á nýrri skýrslu um fjártækni á Íslandi 2026 sem Íslandsstofa og SFF stóðu fyrir. Helstu niðurstöður úr kortlagningunni verða kynntar og við fáum sömuleiðis að heyra áhugaverð erindi frá aðilum úr geiranum.
Framsögumenn á viðburðinum verða:
• Eszter Czibor, Northstack
• Ólöf Jónsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka
• Garðar Karl Ólafsson, yfirmaður viðskiptaþróunar hjá Myntkaupum
• Bergur Ebbi Benediktsson, meðstofnandi Spesíu
Við hlökkum til að sjá þig!
Viðburðurinn er öllum opinn en skráning er nauðsynleg hér.